Nýjar kvöldvökur - 01.03.1917, Blaðsíða 4

Nýjar kvöldvökur - 01.03.1917, Blaðsíða 4
50 NÝJAR KVÖLDVÖKUR. drambsamir, þegar þeir verða þess vísari, hversu mikið vald þeir hafa yfir kvenfólkinu. Pú ætt- ir að gefa honum í skyn stöku sinnum, að honum hefði ekki fullkomlega tekist að ná ástum þínum. Rað er nauðsynlegt til að halda ástarþránni vakandi hjá honum.« »Eu hvað þú þekkir Gúnther Iítið,« sagði Margrét. Pegar Margrét var farin opnaði Elísabet gluggann og hallaði sér út úr honum. Pað var komið miðnætti. Himininn var skýjaður og niða myrkur úti. Elísabet var, að eðlisfari stolt og Iét aldrei í ljósi leyndustu tilfinningar sín- ar. En í kvöld var hún í því skapi, að henni fanst sig vanta einhvern til þess að tala við sem gæti skilið hana. Hvernig stóð á því, að Margrét þurfti nú endilega að vera að skýra frá þessum barnalegu skoðunum sínum á hjóna- bandinu í kvöld? Og hversvegna fanst henni að hún hefði aldrei fundið til ástarþráar í brjósti sér fyr en í kvöld? V. KAPÍTULI. Vorið hafði aldrei fyr í manna mitinum verið jafngott og nú. Rósirnar höfðu aldrei sprungið jafnsnemma út og í ár og engisprett- urnar höfðu aldrei fyr byrjað að tísta svo snemma á akrinum. Margrét fórstöku sinnum til Törken- feld og »Doberheim«, sem voru hlutar af greifadæminu »WoIsau.« Auðvitað varð Gún- ther ávalt að vera með henni, þegar hún fór þangað, og gérðist hann brátt leiður á því að verða ávalt að fylgja henni eftir, ef hún fór út fyrir húsdyr. Greifafrúin gamla var vön að taka sér skemti- göngu og bauð hún Magrétu oft með sér til þess að losa son sinn við fylgdarmannsstarfið. En öll framkoma gömlu greifafrúarinnar, sem var heldur þurleg, hafði lítt fjörgandi áhrif á Mar- grétu. Pegar Elísabet var rneð þeim, sem stund- um kom fyrir, var ávalt glaumur og gleði á ferðum, því þótt hún hefði dálæti á öðru frekár en að tala við Margrétu, sem hafði svo gagnólíka skoðun og hún á flestum málum, þá voru yfirburðir hennar svo miklir, að hún gat fengið alla til að skemta sér, þar sem hún var með. En Gúnther kunni ékki betur við sig en Margrét. Eftir andlát föður síns hafði hann sjaldan verið heima og ekkert skipt sér af hverju fram fór heima fyrir. Hann hafði naum- ast litið á reikningsbækur bústjórans og hafði ávalt fallist á allar hans tillögur í stjórn greifa- dæmisins, ef þær að eins ekki höfðu í för með sér að Gúnther þyrfti þessvegna að tak- marka útgjöld sín eða höggva yrði tré i garði inum eða veiðidýrin fækkuðu. En nú varð skyndilega breyting á þessu. Hann varð sjálfur að hugsa um, hvað gera skyldi, hvernig öllu skyldi hagað og það átti ekki við skap hans að hugsa um slíkt og hafa ■forsagnir á því, er að búskap laut. Og bú- stjórinn — Lúthke hét hann — fékk vanalega það svar, þegar hann bar eitthvað undir Gúnt- her, að því yrði hann að ráða, því á því hefði hann mildu betra vit en hann sjálfur. En slundum kom það einnig fyrir, að ef bústjór- inn hafði skipað fyrir um eitthvað, án þess að hafa fyrst borið það undir Gúnther, að hann fékk ávítanir fyrir og varð að gera aðra ráðstöfun. Á þennan hátt komst hálfgert los á allar fyrirskipanir með alt, er að búskapnum laut og allan rekstur hans. HeimanmundurMargrét- ar hafði verið lagður í gamalt verzlunarhús og og voru vextirnir notaðir til breylinga og skrauts á ýmsum herbergjum í höllinni svo og til að kaupa fyrir reiðhesla og ökuhesta Lúthke vildi láta nota þessa peninga til umbóta á jarðeign- um, en hafði enn aldrei haft kjark í sér til þess að leiða það í tal við greifann. Einu sinni hafði hann verið hjá greifanum og sýnt honum reikninga sína og hafði greif- inn aðeins litið á þá og gefið honum svo vísbendingu um að hann mætti fara. Lúthke staðnæmdist við dyrnar þegar hann var á leið- inni út og hóstaði og ræksti sig nokkrum sinnum og sagði svo mjög Iágt og auðmjúk- lega:

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.