Nýjar kvöldvökur - 01.03.1917, Blaðsíða 22

Nýjar kvöldvökur - 01.03.1917, Blaðsíða 22
68 NÝJAR KVÖLDVÖKUR. slíkri fegurðardrós. Og það verð eg að kann- ast við, að ekki er vald þeirra Iítið, þar sem þær geta breytt hraustum hermanni í viljalaust verkfæri, sem hlýðir í blindni boði þeirra og banni.« »Hugprúði Saraceni,« sagði Leópard-ridd- arinn. »Ef eg væri ekki á pílagrímsferð til hinnar helgu grafar, þá teldi eg mér það sannan heiður, að fylgja þér til herbúða Rik- arðar Englandskonungs. Rar mundi þér gef- ast tækifæri til að sjá valinn hóp af Englands og Frakklands fegurstu meyjum.« »Ef þú vilt fresta pilagrímsferð þinni, göf- ugi Jórsalafari, þá tæki eg fagnandi tilboði þínu. Og trúa máttu því, að forsjálla væri fyrir þig að snúa aftur til herbúða landa þinna en að halda áfram. Pví að ætla sér að ferðast til Jórsala án vegabréfs, er að eiga á hættu að missa höfuðið.« »Eg hef vegabréf,* svaraði riddarinn og dró upp skjal nokkurt undirritað af Saladín soldáni og með hans innsigli. Saraceninn beygði höfuð sitt til jarðar, þegar hann sá innsigli Egyftalands og Sýrlands nafnfræga soldáns. Síðan kysti hann bréfið með mikilli virðingu, lagði það upp að enni sér og fékk síðan riddaranum það og mælti: »Hugsunarlausi maður, þú hefur syndgað gegn þínu og mínu blóði með því að sýna mér eigi þetta leiðarbréf er við mættumst.« »Þú komst þeysandi með spjótið á lofti. Hefði heill flokkur ætlað að ráðast á mig, hefði eg án vansæmdar getað aflað mér friðar með því að sýna bréfið. Eri þetta horfði öðruvísi við, þegar einungis einn maður réðist á mig.« »Pað var mikil gæfa fyrir mig, að eg drap þig ekki, þar sem þú hafðir vegabréf frá kon- ungi konunganna. Pví sannarlega hefði sverðið eða snaran réttilega verið látin hefna fyrir slíkt afbrot.* »Gleður mig, að bréf þetta getur orðið mér að lið, því eg hef heyrt, að ræningjaflokk- ar geri leiðir hér ótryggar.* »Pað er éngin skreytni, hugaði maður, en við höfuðfat spámannsins sver eg það, að ef þú féllir fyrir slíkum níðingum, skyldi eg hefna þín grimmilega, og láta riddara mína strádrepa. þann óþjóðalýð.« »Eg vil óska, að þú þurfir ekki að hafa slíka fyrirhöfn minna vegna, göfuglyndi emír. En heit mitt hefur verið hrópað til himins, og það verð eg að efna. Og nú verð eg að fara að hugsa um, hvar eg geti haft náttstað í nótt.« »í tjaldi föður míns.« »Pessari nótt,« svaraði kristni riddarinn, verð eg að eyða við bænir og meinlætingar hjá hinum helga manni Theódórik af Engaddi, sem dvelur hér í eyðimörkinni, og ver lífi sínu í þjónustu himnaföðursins.* »Pangað skal eg veita þér örugga fylgd,« sagði emírinn. »Fyrir þá sem rækja yðar trú með einlægni og alvöru, erum við höfðingjar þessa lands skjól og skjöldur. Og þar sem maður sá, er þú vilt finna, er einn slíkur, þótt ljós spámannsins hafi eigi náð til hans, nýtur hann þó vináttu minnar og virðingar. Pessi Theódórik er látinn í friði bæði af Tyrkjum og Aröbum, og þótt hann stöku sinnum hegði sér nokkuð undarlega, þá fetar hann þó að ýmsu leyti í fótspor spámannsins, og verð- skuldar því vernd hans, sem sendir — —« »Verndi mig María mey!« greip Leópard- riddarinn fram í. »Dirfist þú að nefna úlfalda- smalann frá Mekka í sambandi — —« Emírnum brá sýnilega og hann titraði af reiði, en náði þó brátt valdi yfir tilfinningum sínum og mælti: »Talaðu ekki illa um þá, er þú ekkí þekkir. Eg mun fylgja þér til jarðhúss einbúans, sem þú naumast mundir finna leiðsagnarlaust. Lát- um vora og yðar munka deila um trúarbrögð- in og hver þeirra séu þau sönnu og réttu, en við skulum ræða um hluti, sem betur sæmir sér fyrir unga riddara að tala um.«

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.