Nýjar kvöldvökur - 01.03.1917, Blaðsíða 39

Nýjar kvöldvökur - 01.03.1917, Blaðsíða 39
ÓÞARFUR Óm 85 »Að vísu, en eg vil eigi að þér séuð í snúningum fyrir mig,<t sagði hann. «Ójú, leyfið mér að gera það, eg fæ mér sjálf bolla um leið, og þá losumst við við, að þjónninn sé að hanga hér yfir okkur.— « Svo stóð hún á fætur, en majórinn horfði á eftir henni með undarlegri svipbreytingu. Var það ást, sem hægt var að lesa í henni? Engan veginn. Miklu fremur var hægt að ímynda sér að það væri hatur. Hún kom að vörmu spori með kaffið og settist á stól hjá honum. »Ó Hinrik, en hvað mér hefir leiðst að fá ekki að sjá yður allan þennan tíma,« hvísl- aði hún. ^Pei, þei, «svaraði hann. »Hér er of hættu- legur staður til að tala um slíka hluti.« Hann vissi samt ekki hvílík hætta var á ferðum. Ein- ungis heyrðist óljóst skrjáf í runna á bakvið, einsog lítill fugl væri að hreifa sig þar, en það var lítil kona náföl í andliti með saman- pressaðar varir, sem skaust burtu þaðan, Óvil- jandi hafði Olívetta heyrt síðustu orð manns síns um hættulegan stað. Sjálf var hún að leita að hvíld og næði fyrir sína þjáðu sál, og hún hafði fundið hana, þá hvíld sem fullvissa um eitthvað veitir. Vissan um að haminga hennar var glötuð og mundi aldrei fást aftur. An þess að hafa hugmynd um hvað hefði komið fyrir konu hans sat Montagne og mas- aði áhyggjulaust við Miss Seldom. En það var þó undarlega mikil harðneskja í svip hans,*fyrst í stað, eins og hann hefði komist að raun um að eitthvað væri á seiði, sem væri hættulegt fyrir hann, og hvort heldur það var með vilja eða af kiauíaskap og óaðgæzlu, að mest alt kaffið fór ofan í grasið hjá honum var ekki gott að vita. Ungfrúin tók þó ekki eftir þessu, því ella mundi hún þegar hafa sótt honum annan bolla af kaffi. Eftir litla stund fór majórinn að draga ýsur. íRéreruð þreyttur, vinur minn,« sagði hún og horfði á hann með gleðiglampa í augum. »Fer vel um yður hér eða viljið þér heldur fara inn í húsið og Ieggjast þar útaf? Eg skal fylgja yður inn.« »Já, þökk fyrir, það held egsé best,« svar- aði hann. »Svo reyni eg á morgun að Ijúka við þessa herstjórnaráætlun, sem er svo áríð- andi. »Er það nokkuð, sem eg get verið yður hjálpleg við, vinur minn? spurði hún. Þú veizt hve fús eg mundi veratil þess.« «Nei, þakka fyrir, hér er að fást við herstjórnarráðstafanir, sem verða að fara leynt og sein eg verð því sjálfur að fást við,« svar- aði hann í hálfum hljóðum og loðmæltur af svefni og staulaðist svo heim að húsinu. Rar kvaddi hann ungfrúna og fór inn til sín, þó ekki inn í sitt herbergi, heldur inn á herbergi konu sinnar. Olívetta sat við gluggann niðurlút og með hendurnar fyrir andlitinu. Hinar krampakendu hreifingar sýndu það, að hún var að gráta, sýndu að gráturinn var ákafur og að hún lagði engar hömlur á hann fremur en ung- barn. Majórinn gekk til hennar lagði hönd sína á öxl hennar og mælti: Mín kæra, litla kæra Olívetta, hvað er það, sem hryggir þig svona mikið? Með hægð leit hún upp og horfði á mann sinn með sínum stóru bláu barnsaugum »Getur það verið, að þú vitir það ekki?« spurði hún með beiskju í röddinni. »Eða veiztu það ekki, að eg hef elskað þig miklu meiia en mitt eigið líf. Og svo undrar það þig, að eg er nú hrygg og græt sáran.* »Elsku góða Olívetta,* sagði majórinn og reyndi til að taka konuna í faðm sinn. Rú veizt þó — — —.« »Nei, láttu mig vera,* greip hún fram í. »Þessi látalæti eru oss báðum til óvirðingar og það er ekki vert að við séum að leika neinn uppgerðar leik. Eg hef sjálf bæði heyrt og séð, að þú tekur hana fram yfir mig.« »Hlustaðu nú á með stillingu, litla, kæra konan mín«, sagði majórinn með sinni djúpu og alvarlegu rödd: »Eg veit ekki, hvað þú

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.