Nýjar kvöldvökur - 01.03.1917, Blaðsíða 17

Nýjar kvöldvökur - 01.03.1917, Blaðsíða 17
KYNJALYFIÐ. 63 afleiðingin af sigurvinningum í mörgum ein- vígum og orustum. Saraceninn hleypti að kossriddaranum á harða spretti, sem er venja Araba, er þeir ráðast á menn. Hesti sínum stýrði hann meira tneð ýmsum líkamshreyfingum en taumhaldi. Spjót sitt bar hann ekki lágt, eins og pila- grímurinn stöng sína, heidur veifaði hann því með hægri hendi yfir höfði sér. Hann mun hafa búizt við, að kristni riddarinn hleypti á móti sér, en hann bara beið, og var augljóst, að hann vildi hlífa hesti sínum, sem ekki var eins léttfær og arabíski gæðingurinn. Hann mun hafa treyst hesti sínum og sjálfum sér til að vera nógu þéttum fyrir að standast fyrstu atlöguna, þótt þeir héldu kyrru fyrir. Líklega hefir Saraceninn komist að sömu niðurstöðu, því þegar hann var ekki meir en tvær stangar- lengdir frá kristna riddaranum, sveiflaði hann hesti sínum til vinstri handar og reið tvo hringi kringum mótstöðumann sinn. • Leópard-riddarinn var hins vegar stöðugt viðbúinn. Hann sneri hesti sínum gætilega þannig, að hann stöðugt gat horfzt í augu við mótstöðumann sinn, en að öðru leyti hélt hann kyrru fyrir. Saraceninn reið svo um hundrað skref frá, og hleypti svo með fljúgandi ferð að mót- stöðumanninum, líkt og þegar valurinn steyp- ir sér yfir hérann, en afíur brast hann áræði og sneri frá. Þegar hann í þriðja sinn kom á sama hátt í sprettinum, sýndist kristna ridd- aranum ráð, að reyna að fá enda á þessum glettum, enda naumast eftir betra að bíða. Hann greip því orustukylfuna sína og kastaði henni með styrkri hendi til emírsins (því það þóttist hann sjá, að hér átti hann í höggi við einn af höfðingjum Múhameðsmanna). Kylfan stefndi á höfuð mannsins og það var með naumindum, að hann fékk borið skjöldinn fyrir. En höggið var svo mikið að skjöldurinn slóstá vefjarhöttinn og varð svo mikið af, að riddar- inn hraut af hestinum. Áður en kristni riddarinn hefði ráðrúm til að nota sér þetta óhapp mótstöðumannsins, spratt hann á fætur, kallaði á hest sinn og stökk í söðulinn án þess að stíga í ístöðin, en á meðan beygði Leópard-riddarinn sig eftir kylfu sinni. Saraceninn var eftir byltuna svo hygginn, að halda sig svo lagt frá mótstöðumanni sin- um, að hann væri. öruggur fyrir kylfukasti hans, og fór að búa sig undir að halda sókninni áfram með bogaskotum. Hann dró fyrir odd lítinn boga og hleypti hesti sínum á sprett og reið nú í stærri hringum kringum mótstöðu- mann sinn og sendi honum bogaskotin með stuttu millibili. Svo var vel miðað, að allar örfarnar, hittu, en spangabrynjan hlífði kristna riddaranum. Svo virtist þó sem sjöunda örin hefði fundið ótryggan stað, því þegar hún hitti, steyptist riddarinn þunglamalega af hestinum. »Saraceninn snaraðist af baki til þess að vita hvernig hinum fallna óvini liði; en undr- un hans varð ekki lítil, þegar hann fann, að Evrópumaðurinn greip til hans með heljar- afli. Hann hafði leikið þetta bragð til þess að geta náð í óvin sinn til að reyna afl við hann. Nú var tekizt á og glímt upp á líf og og dauða, og enn gat Saraceninn komizt undan með Iiðleik og ráðkænsku. Kristni ridd- arinn hafði náð góðu taki í sverðbeltí hans og hélt honum föstum, en emírinn Iosaði af sér beitið, slapp þannig og komst á bak og hleypti frá mótstöðumanninum. En nú var hann búinn að missa spjót. sitt og örfamæli, sem hvortveggja var áfast við beltið, og vefjarhölt sinn hafði hann einnig mist, og mun hann því hafa þótst illa fær um að halda sókninni áfram. Enda leit nú svo út, sem hann óskaði eftir, að vopnahlé kæmist á, því hann nálgaðist nú kristna riddarann með útrétta hönd, en ekki með otandi spjóti. aÞað er vopnahlé milli Múhameðsmanna og kristinna manna,« sagði hann á hrognamáli því, sem algengt var að nota milli krossfaranna og Múhameðsmanna. »því eigum við þá að liggja í ófriði? Látum okkur heldur semja frið.« »Eg tek því boði,« sagði Leópard-riddar-

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.