Nýjar kvöldvökur - 01.03.1917, Blaðsíða 8

Nýjar kvöldvökur - 01.03.1917, Blaðsíða 8
54 NÝJAR KVÖLDVÖKUR. Hún var reið og krefti ósjálfrátt hnefana í bræði sinni. Mývargurinn flögraði í stórum hópum í kríngum hana og olli það henni óþæginda. Regar hún kom til prestsetursins gekk hún hægtuppgarðinn.Prestsetursgarðurinn íSchöneic- hen var mjög vel hirtur og kunnu allir þar vel við sig. Hann líktist mest garði í klaustri, því öðru megin við hann stóð kirkjan en hinu- meginn íbúðarhús prestsins og peningshúsin. Kirkjuveggirnir voru úr steini, en meðfram þeim var gróðursettur vafningsviður, sem al- veg huldi þá. Pegar Elísabet kom inn í anddyrið, hitti hún þar gamla konu, sem virtist eiga mjög annríkt. »Guð hjálpi okkur, náðuga ungfrú, þér hittið illa á, því hér er alt á tjá og tundri, eg er að taka til í herbergjunum hans Willys, því presturinn á von á bréfi frá honum á hverri stundu og úr því kemur liann strax heim. Elskulegi drengurinn minn, eg get tæplega hugsað mér það, en eg hefi fóstrað hann frá blautu barnsbeini og nú er hann yfirmaður á stóru herskipi og þar að auki hefir hann verið í stórri sjóorustu.« Nú varð gamla konan að þurka tárin úr augunum. Elísabet fór inn í herbergið, því dyrnar voru opnar. Var þar stór bókahlaði á gólfinu og kassi einn með fiðrildum í. En ýmsar myndir lágu á víð og dreif um alt gólfið. »Er hann líkur þessari mynd?« spurði El- ísabet og tók mynd, sem lá ofan á bókahlað- anum og gerð var með rauðkrít. Var það tnynd af laglegum unglingspilti. »Já, hann er alveg eins,« sagði maddama Wessel og andlit henn- ar varð alt að einu brosi. »En nú er hann ' orðin stór og mikill maður. Pað var leiðin- legt, að þér skilduð ekki vera heima, náðuga greifadóttir, þegar hann var heima að heim- sækja föður sinn fyrir fjórum árum.« »Er presturinn heima?« spurði Elísabet »Hann ætlaði að lesa með mér enskuna í dag.« »Já, hann er inni í skrifstofunni. Skelfing var það gott, að þér skilduð koma í dag, því þegar þér eruð hér, er hann miklu glaðari en ella.« »Sýnist yður, maddama Wessel, að hann hafa breyzt mikið nú upp á siðkastið?« spurði Elísabet. Gamla konan tók af sér glerugun og horfði alvarlega á Elísabetu. »Náðuga greifadóttir,« sagði hún. »Um næstu páska eru 33 ár síðan eg kom hingað sem ráðskona. Prestkonan var þá nýlega dáin og Willy lá í vöggu. í 33 ár hefi eg gætt þess, að á hverjum laugardegi, meðan hann var að semja ræðuna sína, væri hér eins kyrt og rólegt og í kirkjunni. í 33 ár hefir hann ekki brúkað aðra flibba en þá, sem jeg hefi þvegið. Og haldið þér svo þar sem eg hafi umgengist hann svo lengi, að eg verði ekki vör, ef presturinn hefir orðið fyrir einhverju mótlæti. Og hann hefir sannarlega nóg hrygð- ar og áhyggjuefni; fyrst kom stórtog þykt bréf frá kirkjuráðinn og síðan eru skammir um hann nálega í hverju blaði.« »Hann hefur sannarlega mörg áhyggjefni,« sagði Elísabet. »En nú ætla eg að fara inn til hans, því hann bíður eftir mér.« Hún gekk að skrifstofunni og barði að dyrum. Presturinn var þar inni og er hann heyrði barið, kallaði hann: »Kom inn« og þegar Elisabet opnaði hurðina, kom hann glaður og brosandi móti henni með pípuna sína í hendinni. »Við förum út í garðinn og setjum okkur þar,« sagði hann, og tökum Shakespeare okkar með okkur. Hvað vorum við að lesa síðast ?« »Richard annan* svaraði Elísabet. Pví næst fóru þau út í laufskálann og studdust við lítið steinborð, er þar var. Elísa- bet las fyrst hátt dálítinn kafla og því næst tók presturinn bókina og gaf skýringar á því, er þurfti. Prestinum þótti vænt um Shakespeare og hafði gert sér mikið far um að skilja rit hans til hlítar. Komst hann þá venjulega í gott skap, er hann tók að lesa í Shakespeare

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.