Nýjar kvöldvökur - 01.03.1917, Síða 23

Nýjar kvöldvökur - 01.03.1917, Síða 23
KYNJALYFIÐ. 69 F*RIÐJ1 KAPÍTULI. Þegar hermennirir höfðu matast og hvílt sig um stund, fóru þeir að búa sig til ferðar. Hjálpuðu þeir hvor öðrutn að laga á sér her- klæðin, sem þeir að nokkru leyti höfðu afklæðst meðan þeir mötuðust, og að söðla hesta sína. Áður en þeir lögðu af stað, fékk kristni riddarinn sér vænan teig af lindarvatninu og mælti við förunaut sinn: »Mér er forvitni á að vita hvað þessi ágæta uppspretta er nefnd, því eg mun ávalt minnast hennar með ánægju og þakklæti, og aldrei hefi eg orðið fegnari svaladrykk en þessu lindarvatni í dag.« Á vorri tungu nefnist hún »giinsteinn eyði- merkurinnar,* sagði Saraceninn. »Það nafn ber hún með réttu,« sagði kristni riddarinn glaður í bragði. »Á ættjörð. minni eru óteljandi uppsprettulindir, en varla inun nokkur þeirra verða mér jafnminnisstæð og þessi uppspretta, sem veitir svölun og endur- næring þar sem þess er mest þörfin.« Að svo mæltu stigu þeir á bak hestum sínum og héldu ferðinni áfram gegnum eyði- mörkina. Nokkuð var þá farið að draga úr hádegishitanum, og kælandi vindblær leið yfir sandauðnirnar og þyríaði upp fínni sandmóðu. Riddararnir riðu um stund hljóðir samsíða. Saraceninn réði ferðinni og hafði leiðbeiningu af fjallshnjúkunum í fjarlægð, sem þeir stefndu að. í fyrstu var sem hann væri ekki fyllilega viss á stefnunni, en er nær dró fjöllunum virt- ist hann átta sig til fulls á leiðinni og fór þá að yrða á förunaut sinn. »Þú hefur spurt mig um nafnið á lindinni góðu, sem við yfirgáfum fyrir skömmu,« sagði hann. »Leyfðu mér nú að spyrja um nafn þitt, mannsins, sem eg hef áttst bæði ilt og gott við í dag?« »Nafn mitt er enn þá ekki þess virði, að nefnast. Þó er því ekki að leyna, að eg með- al krossins herskara nefnist Kenneth og er kend- ur við sofandi Leópard, sem eg ber sem skjald- merki. Heima á ættjörð minni ber eg annað nafn, en það mun Iáta illa í eyrum hérlendra manna. Og háttvirti Saraceni, leyfðu mér nú í staðinn, að spyrja þig um nafn þitt, og hvað arabiskur ættstofn hefur þann heiður að telja þig sem afsprengi sitt?« Kenneth riddari, það gleður mig, að eg á ekki erfitt með að bera fram eða nefna nafn þitt. Þú spyrð um nafn mitt og ættstofn. Eg er eng- inn Arabi, eins og þú heldur, og þó er eg kominn af ættstofni, sem var eins viitur og herskár og arabiskar höfðingjaættir. Eg er nefnd- ur Ilderim Fjallaljónið, og í Kúrdistan, þar sem eg er upprunninn, telst enginn ættstofn göfugri en Seldshuarnir, og af þeim stofni er eg kominn.« »Eg hef heyrt, að ykkar stóri soldán sé af því bergi brotinn,* sagði riddari Kenneth. »Spámanninuin séu lof og þakkir, sem veitti fjölluin vorum þá sæmd, að senda úr skauti þeirra hann, hvers orð er sigur,« sagði Sara- ceninn með lotningu. »Ekki er eg nema eins og ormur í mold í samanburði við konung Egyftalands og Sýrlands, og þó er nokkurt til- lit tekið til mín í heimkynni mínu. — En með- al annara orða, með hvað marga menn komst þú að heiman í þennan ófrið?« »Svo eg segi sann!eikann,« svaraði Kenn- eth, »gat eg með miklum erfiðismunum eigi safnað saman nema rúmum fimmtíu mönnum að meðtöldum bogaskyttum og þjónustumönn- um. Gæfan hefur ekki leikið við mig, því þessi sveit mín er nú úr sögunni, sumir hafa fallið, nokkrir hafa strokið, en flestir hafa sýkzt og dáið. Einungis einn af mönnum mínum er nú á lífi, en hann er hættulega sjúkur, og eg er á pílagrímsferð hans vegna.« • Kristni maður,« sagði Ilderim. »Eg hef hér fimm örvar í örvamæli mínum, lagðár arnár- fjöðrum, ef eg sendi eina þeirra til tjalda minna rísa upp eitt þúsund riddarar, stíga á hésta sína og koma til fylgis við mig, og með öllum 5 örvuntim get eg safnað til mín 5000 riddurum, en sendi eg boga minn, mun jörðin skjálfa undir fylkingum tíu þúsund ríðandi hermanna, og svo kemur þú með fimtíu sveina í herferð gegn því landi, sem eg byggi, og er einn af þess minstu forvígismönnum. Það veit skaparinn og allir helgir menn,«

x

Nýjar kvöldvökur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.