Nýjar kvöldvökur - 01.03.1917, Blaðsíða 43

Nýjar kvöldvökur - 01.03.1917, Blaðsíða 43
ÓÞARFUR ÓTTI. 89 °g sá þegar að rithöndin var sú sama og á því er ritað var á bókina, það var þannig ljóst, að hennar rétta nafn var Fráulein Búchner. Hún fékk að vita um þessar áríðandi hermála- ætlanir, sem eg lézt ætla að yfirfara hér úti, og ætlaði sér leik á borði að ná þeim. Retta var sú gildra sem hún gekk í. Eg skauzt inn í her- bergi hennar þegar hún var úti í dag og var svo heppinn að ná þar í skammbyssu hennar, því svona drósir eru sjaldan vopnlausar, og tók úr henni öll skothylkin. En á meðan hafði hún náð í Bernstein og sagt honum hvernig komið var og beðið hann að bíða út í skóg- inúm eftir nánari upplýsingum, sem hann mundi fá með hundinum. En menn mínir sátn um hann og tóku hann til fanga, hundurinn vísaði þeim á hann. Regar rakkinn var á heimleið sat eg um hann til að ná af lionum orðsending þeirri, er eg þóttist vita að hann hefði, og þá var það er hann beit mig til skemda í handlegginn. Stúlkan sjálf útvegaði mér kaffið og lét í það sterkan skamt af svefnmeðali, svo eg skyldi liggja í rotinu meðan hún væri að flýja. Hún tók ekki eftir því, að eg helti því öllu niður. Eg fór upp og lézt vera dauðsifjaður og lagð- ist fyrir, eftir að hafa talað við konuna mína, með hin mikilvægu skjöl í umslagi undir höfð- inu, enda leið ekki á löngu að hún læddist inn til mín og náði umslaginu, en eg lést steinsofa. Svo var hundurinn sendur með miðann til Bernsteins um að hún hefði skjölin, að hann skyldi sækja þau þegar hún sýndi ljós þrisvar sinnum í glugganum. Niður við fljótsbakkann liggur mótorskip; með því ætluðu svo þessi skötuhjú að fiýja í nótt og reyna að komast til Spánar. Retta er nú öll sagan. Eg varð að leika mitt hlutverk, eins og eg gerði, án þess að trúa nokkrum fyrir því hvað eg væri að hafast að af ótta fyrir því, að það gæti skaðað áform mitt. En þessi leikur var ekki skemti- legur fyrir konuna mína. Geturðu fyrirgefið mér þetta háttalag Olívetta? sagði majórinn og kysti á hönd konu sinnar. Hið ánægulega bros hennar sýndi, að hún gat það. Rað leið ekki á löngu að dauðadómur var kveðinn upp yfirbáðumþessum þýsku njósnurum eins og ölium hernaðarnjósnurum á stríðstimum og þau voru tekinn af með sex ritfilsskotum hvert eins og venja hvað vera. (Endir.) LÍFIÐ EFTIR DAUÐANN. Rýlt hefur Sig. Kristófer Pétursson. (Framh.) III. Hreinsunareldurinn, Þeir menn sem halda á lofti heimskulegum sögum um allskonar grýlur, sem eru ekki til, í stað þess að láta stjórnast af heilbrigðri skyn- semi, valda oft bæði sjálfum sér og öðrum al- veg ónauðsynlegum ótta og kvíða og jafnvel ástundum sárum andlegum þjáningum. Hin tilhæfulausa guðlöstunarkenning um helvítisbálið hefir til dæmis gert miklu meira ilt af sér en talsmenn hennar fá rent grun í. Hinna illu af- leiðinga hennar gætir engu síður hinumegin en hérnamegin grafarinnar. Pað líður þó að jafnaði ekki á löngu, áður en framliðinn mað- ur, sem kvíðir því að lenda í helvíti, hittir ein- hvern þann látinn mann að máli, sem getur komið fyrir hann vitinu, frætt hann um það, að hann þurfi ekkert að óttast; hann geti lifað á þessu nýja tilverustigi alveg eins eðlilegu lífi og hér í heimi. Og smátt og smátt kemst hann svo að þeirri niðurstöðu, að jafnvel þó margt sé í þess- um heimi, sem hann er nú kominn í, nákvæm eftirmynd af því, serri hann hefir þekt alla æfi, þá er þó Iíka margt, sein kemur honum mjög nýstárlega fyrir sjónir. Sérstaklega hlýtur 12

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.