Nýjar kvöldvökur - 01.03.1917, Page 46

Nýjar kvöldvökur - 01.03.1917, Page 46
92 NÝJAR KVÖLDVÖKUR. ástandi þess manns, sem hefir hugann fastan við jarðnesk metorð og völd eftir dauðann. Hann hefir alla æfi verið að brjóta heilann um það, hvernig hann ætti að koma svo ár sinni fyrir borð.að hann kæmisttil auðs ogmetorðaog valda- græðgin yfirgefur hann ekki, þó hann sé kom- inn yfir í sálarheima. Hann hugsar nú ráð sitt vel og vandlega eins og áður, þangað til hann þykist sjá, hvernig honum muni takast að komast upp á hefðartindinn; en þá fyrst áttar hann sig á því, að hann hefir mist það, sem mest á ríður, sem sé jarðneska Iíkamann, og lík- amalaus kemst hann aldrei upp í veraldlegan valdasess. Allar hinar miklu frægðar og valda- vonir falla þá hver um aðra þvera, og fyrst í stað sýnast honum þá öll sund Iokuð og lífið með öllu einkisvirði. En svo er metorðagirnin rótgróin hjá honum, að hvað eftir annað byr- jar hann á nýan leik og fer að bisa við að koma metorðagirnisklettinum upp á hefðartind- inn, þangað til þessi ástríða hans minkar smátt og smátt og hverfur seinast. Pá er eins og hann átti sig á því sem hann hefði átt að sjá undir eins, að engin nauðsyn rekur hann til að bisa við bjarg þetta, og hann tekur þann kostinn að láta það eiga sig, og hættir að hugsa um að komast til veraldlegra valda. Vér höfum nú virt fyrir oss Iíf þess manns eftir dauðann, semekkertkveður að, og sömuleiðis líf þeirra manna sem eru frábrugðnir meginþorra manna að því leyti að þeir hafa miklar ástríður eigingjarnar til brunns að bera. En vér skulum nú athuga hvernig líf þeirra manna verður sem eitthvað kveður að, manna, sem hafa áhuga á ein- hverju því, sem getur gert þá að meiri mönnum. En til þess að geta áttað oss á því.hvern- ig lífið eftir dauðann hlýtur að koma þeim fyrir sjónir, verðum vér að gá að því að megin- þorri manna verður að verja hér í heimi mest öllum tíma sínum og kröftum í störf sem hann er ekki hneigður fyrir. Fæstum mundi detta í hug að fást við mörg hin algengu störf, ef þeir væru eigi knúðir til þess af því að þeir þurfa að hafa ofan af fyrir sér og sínum. Og vér getum hugsað oss, að mörgum mönnum þyki það nokkur viðbrigði að losna við alt strit og stríð hins daglega lífs. Dauðinn hefir gert þeim þann mikla greiða, að varpa af þeim öllum áhyggjum og kvíða hins jarðneska lífs. Reir þurfa nú ekki að hugsa framar um fæði, klæði né húsnæði, því að sálarlíkami þeirra þarfnast einskis af því tægi. Og nú er þeim innan handar að leggja sig eftir hverju því, sem þeir hafa löngun til. Pví láni eiga fæstir menn að fagna hér í heimi eftir að þeir komast á legg. En nú geta þeir lagl stund á hvað sem þeim þóknast, það er að segja, ef það er framkvæmanlegt í sálar- heimum og án þess að til þess þurfi jarð- nesk efni. Vér skulum gera ráð fyrir að látinn maður hafi nautn af söng og hljóðfæraslætti. í sálarheimum. getur hann átt kost á að njóta þeirra unaðsemda, sem hljómlistin fær veitt, og það í miklu ríkari mæli en á meðan hann var í jarðneska líkamanum. í sálarheimum heyra menn sem sé aðra og æðri hljóma, sem gera mönnum efni söngsins eða hljóma samræmisins miklu ljósari en það getur orðið hér í heimi. Og þeir menn, sem hafa nautn af listaverkum, málverkum og myndhöggvarasmíði geta fullnægt þar fegurðarþrá sinni. í heimi listanna er um auðugan garð að gresja á hinu æðra tilverustigi. Og hver sá maður sem hefir nautn af að dvelja í fögrum og frið- sælum héruðum, . er innanhandar að setjast að hvar sem hann vill, því hann getur þá horfið á svipstundu til hinna fegurstu staða hnattarins, sem hefði kostað hann ærið fé og mörg ár til að komast til meðan hann lifði hér í heimi. Og ef hinir látnu vinir vorir hneigast að vísindum eða sagnfræði, þá hafa þeir auðvitað ókeypis aðgang að öllum rannsóknarstofum og bókasöfnum veraldarinn- ar. Og skilningur þeirra á hinum vísindalegu tilraunum á t. d. efnarannsóknarstofunum hlýtur að verða miklu rækilegri, þar sem þeir geta athugað hinar ósýnilegu efnabreytingar, sem verða smátt og smátt áður en hinar sýnilegu breytingar koma í ljós. Og svo er líka eitt mikið fagnaðarefni, sem hver maður á í vændum um leið og hann losnar við líkamann og það

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.