Nýjar kvöldvökur - 01.03.1917, Qupperneq 47

Nýjar kvöldvökur - 01.03.1917, Qupperneq 47
LAUSAVÍSUBÁLKUR. 93 er það að finna aldrei til þreytu. Eins og kunn- ugt er, getum vér ekki stundað livíldarlaust nám eða unnið óaflátanlega andlega vinnu, vegna þess að heilinn þolir ekki ótakmarkaða áreynslu. En þreytan virðist ekki eiga heima á öðru til- verustigi en þessu. Og þó vér tölum iðulega um andlega ofreynslu, þá er það aðeins heil- inn, en ekki hugurinn, sem þreytist. (Framli,) Lausavísubálkur Nýrra Kvöldvaka. i. Skagfirzkir heimagangar. Safnað hefur Margeir Jónsson. (Framh.J Skúli Bergþórsson bjó á Meyjarlandi á Reykjaslrönd eftir miðja 19. öld. Hann hefur ort töluvert mikið, en kvæði hans eru flest ort »í gamla stíU; þó eru til eftir hann ;góð- ar stökur. Eiit vor réri Skúli við Drangey, sem oftar. Þar var þá Björn Skram og fleiri. Yfir verlíðina hafast menn við í kofum, sem kallast »byrgi«. Var Björn sér í byrgi með mönnum sínum, en Skúli í öðru. Létu menn óspart fjúka í kviðlingum, og þótti ekki alt vandað. Rá var það eitt sinn, að í byrgi Björns var rætt um kveðskap Símonar Dala- skálds. Lofuðu hann sumir en aðrir löstuðu. Björn kvað þá þetta: Símon spanna kátur kaus Kjalars valinn bikar; reglugrannan hefur haus — — Lengra komst hann ekki, því í sama bili gekk Skúli fyrir búðardyrnar, hafði hann heyrt vísu- partinn og bætti við: en hagmælskan er dæmalaus. Regar Sfmon frétti vísuna, kvað hann þetta: Björn mig vildi höldum hjá hrekja í mærðarblandi. Fyrir skildi skaut mig þá Skúli á Meyjarlandi. Regar Bólu-Hjálmarskvæði komu út (líklega fyrsta útgáfa 1879) og Skúli hafði lesið þau, kvað hann þessa vísu, sem tekin er eftir eigin handriti hans: Ró að nokkuð blökk á brá brögnum þyki kvæðin, gullnar perlur glóir á gegnum yfirklæðin. Og við lát Hjálmars orti Skúli: Hvílir undir helgum svörð Hjálmar skáldið knáa. Líka hans í hróðrargjörð hölda veit eg fáa. Oft og vel stórgerðum gekk geðs að leyna stærðum. Mótlætis af mörgum hlekk margvíslega særðum. Skúli sótti sjóróðra, sem aðrir Reykstrend- ingar. Var það þá einu sinni að skall á sót- svarta þoka meðan Skúli var á sjó. F*á kvað hann: Nú er þoka sjávar svört, sézt ei langt á veginn. Ró er ljósalína björt Loftið gegnum dregin. Ekki veit eg hvar Skúli hefur ort eftirfar- andi vísu. En talað er, að hann hafi beðið um gistingu á bæ einum, en húsfreyjan hafi úthýst honum. Vísan er alkunn og er svona: Pað er máske kölluð kurt á kjálkanum hérna megin, að rausnarkonur reki burt Reykstrendinga greyin. Guðmundur Ketilsson bjó á Sölvabakka í Húnavatnssýslu, sem kunnugt er, þegar Natan bróðir hans var á Þorbrandsstöðum. Orti Guðmundur allmikið, meðal annars Ijóðabréf

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.