Nýjar kvöldvökur - 01.05.1917, Page 45

Nýjar kvöldvökur - 01.05.1917, Page 45
LÍFIÐ EFTIR DAUÐANN. 139 fengið einhverja, þó ekki sé nema ærið ófull- komna, hugmynd um það, verða menn að varpa frá sér öllum hinum einfeldnislegu hugmyndum, er þeir hafa gert sér um það. Himnaríki er sem sé.ekkert sérstakt svæði eða staður, heldur miklu fremur meðvitundarástand. Ef eg væri spurður hvar himnaríki væri, mundi eg svara því, að það væri hér, þar sem vér stöndum nu á þessu augnabliki, og nær oss en loftið sem vér önd- um að oss. »Dýrðarljóminn er alt umhverfis yður«, sagðí meistarinn Búddha, »og þér þurf- ið ekki annað en taka skýluna frá augum yðar til þess aðsjáhann.« En hvað er átt við með þessum orðum: að taka skýluna frá augum vor- um? Rað er með öðrum orðum, að hefja með- vitund sína á æðra tilverustig og festa hana í einu starffæri hennar, sem er margfalt smágerf- ara en efnislíkaminn. Eg hefi þegar sagt, að mönnum sé vinnandi vegur að flytja meðvit- und sina úr jarðneska líkamanum og yfir í sálarlíkama sinn, og skynja sálarheima. Með samskonar aðferð tekst mönnum einnig að flytja meðvitund sína yfir í huglíkamann, þ. e. starffæri það, sem maðurinn notar á meðan hann dvelur í hugheimum. Og ef honum tekst að festa meðvitund sína í því starffæri, getur hann skynjað liina himnesku dýrð á meðan hann lifir og starfar hér í heimi. En ef hann hefur einu sinni skynjað það dýrlega, tilveru- stig, eru litlar líkur til að hann kvíði því að hverfa héðan. Þeir eru færri, sem komast inn í hugheima þegar í stað eftir dauðann. Eg hef þegar sagt að hinn innri maður lifir stöðugt meira og meira hugrænu Iífi eftir dauðann. Alt líf hans í sálarheimum miðar stöðugt að því fjarlæga hann frá hinum jarðneska heiini. Og svo rekur að því, að hann hverfur úr sálarheimum að sínu leyti eins og hann hvarf héðan. Burtför hans úr sálarheimum nefna dulspekingar hinn annan dauða. Maðurinn afklæðist þá sálar- líkama sínum og hverfur sjónum sálarheims- búa inn í hugheima. Enginn kvíði eða sársauki er samfara þessum öðrum dauða. En vanalega falla menn í stundardvala um leið og þeir fara yfir á þetta æðra tilverustig, og er hinn annar dauði að því Ieyti líkur hinum líkamlega dauða. En smátt og smátt rakna þeir við aftur, og lifa úr því fullu meðvitund- arlíii í hugheimum. Fyrir nokkrum árum ritaði eg bók, sem eg nefndi Devachanic Plane þ. e. Hugheimar, og í henni reyndi eg að gefa nokkra lýsingu af hinum ýmsu álfum þessara dýrðlegu Ijósheima.. Eg skýrði þar frá ýmsu, sem eg hafði athugað við rannsóknir mínar í hugheimum. Nú vil eg reyna að lýsa nokkuð lífi manna í þeim en frá öðru sjónarmiði. En þeim sem leikur hugur á að fá að vita nokkuð gjör um það, vildi eg leyfa mér að benda á bók mína »Devachanic PIane.« Að likindum er best að taka það fram undireins að hugheimarerutilverustig hinna guð dómlegu hugsana eða með öðrum orðum: þeir eru hið rétta heimkynni hugsananna. í hugheimum verður hver sú hugsun, sem menn geta einu sinni hugsað, áþreifanlegur veruleiki. Eg get auð- vitað ekki búizt við að meginþorri manna geti gert sér ljósa grein fyrir þessum sannindum, af því að hann hefur æfilangt verið vanur að skoða aðeins jarðneska hluti raunverulega, og það sem er ekki af jarðnesku bergi brotið, sé ímyndun ein, sem eigi ekkert skylt við veru- leikann. Sannleikurinn verður þó þegar öllu er á botninn hvolft, sá að allar jarðneskar efnis- tegundir eru grafnar ofan í efni æðri heima. Og hversu raunverulegir sem hinir jarðnesku hlutir eru, séðir frá sjónarmiði þessa heims, þá hafa þeir hvorki varanlegt né út af eins veru’ legt gildi, ef á þá er litið frá æðri tilverustig- um. En hvernig sem þessu er farið í raun og veru, þá verður flestuin mönnum, meðan þeir lifa hér, gjarnast að skoða hugheima sem ímyndaða huliðsheima — heima, »sem gerðir eru úr efni því, sem andin smíðar drauma úr« eins og skáldið kemst að orði. (Framh) 18’

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.