Nýjar kvöldvökur - 01.05.1917, Side 49

Nýjar kvöldvökur - 01.05.1917, Side 49
LAUSAVÍSUBÁLKUR 143 ið, og það sérsiaklega nú, þar sem það er nú á dagskrá, sem ein af aðalþjóðum heimsófriðarins. Kverið er skemtilega ritað og hið fróðlegasta, þótt víða sé stutt yfir sögu farið og mörgu slept, sem maður hefði gjarnan viljað vita nán- ara um t. d. þjóðarauð þeirra o. fl. Enginn vafi er á því,. að lýsingin er rétt, það sem hún nær, enda Iysir kverið miklum kunnugleika á þjóðareinkennum Frakka, og hver sem kverið les hlýtur að græða tvent á því; kunnugleika á þjóðinni og hlýjan hug til þessarar glæsilegu þjóðar. Kverið er ritað með frönsku andríki og fjöri, og sýnir það vel að Frakkland hefur um margar aldir verið forgönguþjóð Norður- álfunnar í fegurðarsmekk, listum og skáldskap, og frakknesk tunga hefur jafnvel enn í dag yfirtökin hér í álfu, bæði sem einskonar al- þjóðamál og fegurðarmál, og frakknesk bygg- ingarlist hafi verið langt um fram alt annað, og sé svo enn í dag. Vert hefði verið að geta þess í athugasemdinni á bls. 7-8, að mörgu af miðaldaskáldskap Frakka var snúið á ísl. tungu á 13 og 14 öld, t. d. Parcevalssögu, íventssögu, sagnabálkinum mikla um Karlamagnús keisara o. m. fl. í Karlamagnúsarsögu er sagan af Rollant og Runzívalsbaidaga bls. 484 — 531 í útg. Ungers, Kristjaníu 1860. Æskilegt hefði verið að fá að sínu leyti eins vcl ritaða bæklinga um hinar stórþjóðirnar, Englendinga, Pjóðverja og Rússa, til þess að gera oss þær einnig kunnar. Pví að bæklingur einn lítill, sem komið hefur út um Pjóðverja í vor virðist ekki leysa þá staðhæfingu vel, að þeir séu líking af Rómverjum hinum fornu. Virtisl sú líking standa nær Englendingum; hvort hún er þeim til lofs eða ekki er annað mál. í sambandi við grein mína í vetur um »Store Nord. Konversations-Leksikon« skal þess getið að forlagið hefur neyðst til að hækka verð á hverju bindi um 50 aura á meðan ófriðurinn stendur vegna verðhækkunar á pappír og bókbandsefni. Pessi hækkun verð- ur afnumin undir eins og forlagið sér sér það fært. /. /. Lausavísubálkiir Nýrra Kvöldvaka. i. . Skagfirzkir heimagangar. Safnað hefur Margeir fónsson. (Framh.ý (Kvöldvökunum hefir verið skýrt frá að í ljóðabréf Guðm. Ketilssonar til Natans, sem birt er í síðasta hefti Kv., vanti þessi 4 erindi er komi á undan síðasta erindinu: Pó skýin verði að skildingum, skepnurnar að snæljósum, allir gleymi áttunum, og enginn viti af höndunum. Pó hellist alt úr heiminum, hulstrið skoppi á vindunum, og innvolsið með ódæmum ytra flæmist huggripum. Skaltu til með skáldreglum skara fram úr tossunum, er hér standa á hinum »exómetra« kvæðunum. Band af eyja barminum í bygðinni hjá refunum þann átjánda ágústum ort er það í ljóðmælum.) í »Óðni», 1916, tilíærði eg þessa vísu: »KetiI velgja konurnar«o. s. írv., og gat þess að Jóni skáldi á Víðimýri hefði veruð eignuð vísan. Eg hef nú fengið vissu fyrir, að það er ekki rétt. Pálmi Jónsson bóndi á Ytri Löngu- mýri í Húnavatnssýslu, greindur maður og minn- ugur, hefur sagt mér tilefni vísunnar þannig: Um tvítugsaldur var Pálmi í Sólheimum á Ásum. Pá bjó Hans Natansson í Hvammi í Langadal. Á þeim árutn fór kaffieyðsla mjög í vöxt, og þá gerði Hans vísuna. Hún er svona:

x

Nýjar kvöldvökur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.