Nýjar kvöldvökur - 01.10.1930, Page 4

Nýjar kvöldvökur - 01.10.1930, Page 4
146 NÝJAR KVÖLDVÖKUR varpaði einn þeirra geispandi. Hann var lágvaxinn, gildur og herðabreiður karl á að gizka um fertugt. Hann nötraði af kulda, vafði sig inn í vormeldúksúlpuna sína og reyndi að grafa sig dýpra í moð og rekjur, sem þeir félagar höfðu lagt sig í á gólfinu. — Æi, Guð minn góður! — Fjandinn hafi stunurnar í þér Egg- ert. Þú ert eins og kona með léttasótt, og enginn getur sofnað fyrir þér! sagði ung og glaðleg rödd við hliðina á honum. En röddina átti risavaxinn, rauðbirkinn maður, sm hlaut að vera innan við þrí- tugt. Hann lá*mitt á milli félaga sinna. Eggert lyfti höfðinu lítið eitt og leit til félaga síns með augum, sem voru rauð og tekin af erfiði og svefnleysi. Andlitið var hrukkótt, dökt og veðurbitið eins og börk- ur á tré, ennið óvenjulega lágt, og nefið, sem var íbjúgt og þar að auki undið út á hægri hlið, svo að það líktist hrútshorni, blikaði alveg fjólublátt í skímunni, sem kom inn um hlöðugluggann. — Getur þér dottið í hug að sofa, hús- bóndi góður, í þessum helvítis kulda? — Þey, þey, drengur Sninn — »Heitt er í Víti, þó hér sé kalt« — nei, þetta er nú einu sinni loftslag ættarlandsins okkar. »Drengurinn« þagði við og hugsaði sig dálitla stund um svarið, en honum var aldrei greitt um mál, svo það snerist upp í að hann snýtti »hrútshorninu« svo glumdi við hátt, og með loppnum fingrum og miklum erfiðismunum leitaði hann í vasa sínum og dró upp annað horn — al- veg eðlilegt nautshorn — en það var tó- bakspontan. Hann stútaði sig rækilega, ýtti svo við húsbónda sínum með pont- unni og sagði: — Vilt þú ekki þefa úr líka, Þorlákur? Þorlákur tók við horninu, snýtti sér og tók í nefið. En á meðan gat Eggert ekki á sér setið. Hann var allóánægður með næturstaðinn, og lét það nú í ljósi með því að tauta: — Hversvegna 1 fjandanum áttum við nú að liggja hérna eins og hundar? Eg er alveg handviss um, að við hefðum fengið rúm handa okkur sjálfum og kannske heytuggu handa klárunum, ef þú hefðir viljað vekja fólkið upp. Húsbóndinn gegndi þessu engu. Hann reis upp við dogg og hristi hið fagra fyr- irmannlega höfuð, sem hafði reglulegt fax af rauðgulu hári og skeggi, eins og umgjörð kringum veðurbarið og karl- mannlegt andlitið. Gletnislegar hrukkur eftir mörg kátínu-bros lágu í kringum blá, bernskuleg og fjörleg augu. Andlits- drættirnir voru hreinir, stórskornir og bentu á óvenju mikið þrek, og munnurinn bar vitni um að maðurinn mundi eigi vera uppnæmur, þótt eitthvað bjátaði á, og að hann mundi eigi láta sér alt fyrir brjósti brenna. En bros hans var þessa stundina hvorttveggja í eiriu glettnislegt og sorgblandið. Hann horfði á manninn, sem lá honum til hægri handar, og sem ekki lét neitt á sér bæra. Hann svaf, eða öllu heldur lézt sofa. Hann hafði mórauða lambhúshettu á höfðinu og barðastóran hatt utan yfir. Hatturinn lá yfir augun- um og huldi mest alt andlitið. Aðeins ís- grátt hökuskeggið var sýnilegt gegnum hettuopið, en það var nóg til þess að gefa vitneskju um, að hann væri elztur þeirra félaga. — Guðmann, sefur þú, sagði sá, er þeg- ar hefir verið nefndur sem húsbóndinn og Þorlákur. — Eggert ætlar að gefa þér »að þefa úr!« Karl kiptist við, settist upp, rétti hatt- inn við ofan á hettunni og nú sást nokk- uð toginleitt, magurt, aldrað andlit, grátt alskegg, beint og sterkbygt nef, raunaleg og gáfuleg dökk augu með blíðu-svip og innsæju augnaráði. — Láttu mig þá sjá baukinn! Röddin. var nokkuð hás, en enganveginn óviðfeld- in. —

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.