Nýjar kvöldvökur - 01.10.1930, Page 36

Nýjar kvöldvökur - 01.10.1930, Page 36
178 NÝJAR KVÖLDVÖKUR fór sinu fram og skeytti í engu boðum hans eða banni. Bar þó mest á því í Sardiniu og Pisa. Meðal annars var Ass- isi páfanum svo fjandsamleg, að hann þorði ekki að koma þar á yfirferð einni um Umbriu 1198 og fór rétt hjá. Þessi almenna andstaða við Innocent- ius III. var bæði trúarlegs eðlis og stjórn- arfarslegs. Kunnu margir illa kröfum þeim, sem páfi gjörði til veraldlegra yfir- ráða, og töldu það illa samræmast stöðu hans sem staðgöngumanns Péturs post- ula, og á hina hliðina voru þá ýmsar þær sértrúarstefnur farnar að skjóta upp höfði, sem síðar verða mjög áberandi og kirkjunni örðugar. Hættulegastur og mest áberandi af sér- trúarflokkunum voru Albigensarnir, sem um 1200 voru orðnir útbreiddir um alla álfuna. Kölluðu þeir sig ýmsum nöfnum í hinum mismunandi löndum, en kenning þeirra var alstaðar hin sama, nokkurs- konar framhald af hinni alkunnu tvíveld- iskenningu Manikea. Heimsskoðun þeirra var hin gamla kenning um tvo guði, annan góðan, sem skapað hefði sálirnar og hinn illan, sem skapað hefði efnisheiminn. Þessvegna var hið æðsta siðferði að kæfa allar holdlegar girndir. Þeir höfnuðu hjónabandi og fjöl- skyldulífi, og öllu, sem þeir kölluðu í and- stöðu við andlegt líf. Sjálfir kölluðu þeir sig »hina hreinu«, með tilliti til hreinlífis síns. Hjá sumum hinum æstustu gekk hreinlífið svo langt, að þeir sveltu sig í hel. Flestir áhangendur þessarar stefnu, gengu samt í hjónaband og sumstaðar varð það ofan á að drepa holdsfýsnirnar með aftaka ólifnaði. Þessi heimsskoðun Albigensanna og framkvæmdir hennar hjá almenningi hlaut að reka til alvarlegra árekstra við kirkjuna. Barátta kirkjunnar gegn þeim varð því andleg barátta fyrir einu dýi’- asta verðmæti kristinnar menningar, ein- gyðistrúnni. Fyrir henni barðist kirkjan. og sigi’aði að lokum. Meix-a djúp verður naumast fundið milli skoðana, en milli heimsskoðunar Albigensa og kii’kjunnar. Lífið var þeim óhreint og vanheilagt; náttúran, dauð og lifandi, djöfulsins vei’k, en í augurn kirkjunnar var gjörvöll til- veran fi’á hendi eins algóðs Guðs, hreint og heilagt listavei’k, sem aðeins vai’ð saui’gað af mannlegri synd. Kirkjuvöldunum í Rómaborg var vitan- lega áhugamál, að komast að afstöðu Frans til þessarar sértrúarstefnu, og þá sérstaklega af hvaða rótum meinlæta- stefna hans væri runnin. Það gat einmitt vakið tortryggni gegn honum, að hann var frá Assisi, og hefir vafalaust gjört það, því Assisi var ein af þeim borgum, sem Albigensarnir höfðu náð miklum völdum í, og það svo, að einn af þeim flokki var þar æðsti maður árið 1203. Maður var nefndur Pétur Valdes. Hann var áður kaupmaður ríkur í Lyon en gjörðist snögglega trúmaður mikill og gaf burt eignir sínar og stofnaði trúar- flokk, sem heimtaði algera fátækt og eignaleysi af áhangendum sínum. Árið 1179 fékk hann heimild hjá Alexander páfa III. til þess að prédika fólkinu iðrun og yfirbót, en skuldbatt sig og sína menn til fátæktar. En þegar árið 1184 varð Lucius páfi III. að bannfæra Valdes og áhangendur hans fyrir óhlýðni við kirkju- völdin og boðun villutrúar. Páfastóllinn var því af beyskri reynslu búinn að læra, að varlega var farandi í að leyfa hinum og öðrum ofstækismönn- um nokkra andlega starfsemi innan kirkjunnar. Reynslan var búin að sýna, að flestir launuðu það traust illa. Frans og bræðurnir voru því settir undir ná- kvæma rannsókn, en Jóhannes kardináli komst brátt að raun um, að hjá þeim var ekkert að óttast. Þeir hölluðust ekki að neinum flokki andstæðum réttri trú.

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.