Ný dagsbrún - 01.01.1904, Page 81

Ný dagsbrún - 01.01.1904, Page 81
NORðUR OO NIðUR. 75 sjálfnm prestunum er ckki óhœtt. Þar duga ekki bœnir eða galdrar, saltari cða sálmakver, heldur það að halda fast við sannleikann, og ef að menn gjöra það ekki, þá eru menn fallnir fyrir áblæstri hennar. Stcfna allt of margra cr eiginlcga sú, að fara svo með sannleikann að hann geti orðið manni að gagni. Það cr alveg sama hvort það er úthverfan cða rjetthvcrfan á hon- um, aðalatriðið cr að hann vcrði manni að gagni. Hafið þjcr ekki tekið eftir þvl aftur og aftur þegar talað cr um cinhvcrja pólitfska blaðagrcin, að alloftast munu þcir, sem eru f andstæðingaflokki scgja, að það sje ckkcrt að marka, það sje engu orði trúandi, sem maðurinn segi. Jeg er ekki þar með að segja, að sá maður hafi farið með ósann- indi, heldur hitt, að allur þorri andstæðinga hatis telur það sem gefið og sjálfsagt, að hann ljúgi. Tíikum til einhvcr eftirmælin cftir dána menn f blöðunum, cða ræður cftir þá dauða. Þar er vanalcga haugað á þá þvf dómadagslofi, að þeir sjálfir mundu skammast sín fyrir að hlusta á það, hefðu þeir verið ofan jarðar með fullum sönsum. Þetta lcsum vjer svo að segja daglcga, bæði f bundnu og ó- bundnu máli. Jcg álft að þjcr sjáið það, að jeg þurfi ekki að fara út f ncin cinstök dœmi, þvf að þegar stefna þessi kcmurfram svona opinbcrlcga í uppfrœðslunni, dagblöðunum, prje- dikunarstólunum, þá muni nóg,og of mikið.vcra af henni í heimilislffinu og prívatlffi cinstaklinganna. Það cr þctta, að það cru svo margir, sem vilja Ijúcja sig áf ram í gegnum lijil. Menn vilja komast áfram með sem ljcttustu móti, og þeim finnst ckkcrt ljettara en þetta, sem kemur af þvf að menn eins og drckka það inn mcð móðurmjólkinni. Börnin sjá þá fullorðnu hafa þctta fyrir sjer, og hvf skyldu þau þá ekki gjöra það líka ? Jeg gæti skilið þessa siðgœðismenning kyrkjunnar,*

x

Ný dagsbrún

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ný dagsbrún
https://timarit.is/publication/512

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.