Nýjar kvöldvökur - 01.04.1952, Blaðsíða 17

Nýjar kvöldvökur - 01.04.1952, Blaðsíða 17
N. Kv. SVEINN SKYTTA 55 fylgja sér upp lágar tröppur, er lágu upp að einkaherbergi konungs. Ib stóð eftir niðri í húsagarðinum hjá hirtinum. Ríkisráðið lét segja til sín, og var þegar hleypt inn ásamt Sveini. Konungurinn sat við stórt borð, inni við arininn, fjærst dyrum salsins. Andspænis honum sat Gabel, leyndarritari konungs, og las fyrir honum friðarsamningana, sem Magnús Höeg hafði komið með frá Hróarskeldu kvcildið áður. Er Skeel hafði varpað kveðju á konung, lagði hann hönd sína á öxl Gjöngeforingj- ans og mælti: „Náðugi herra konungur minn! Hér færi ég yður þá mestu gleðifrétt, sem yðar Há- tign hefur fengið um langa liríð.“ „Sveinn Gjcinge! “ mælti konungur glað- ur, reis upp frá borðinu og gekk á móti Sveini. „Vertu oss velkominn, hetjan mín góða!“ Sveinn hafði beygt kné og kyssti nú á hönd konungs, sem hann rétti honum. „Og hvernig hefur gengið með erindi það, sem vér fólurn þér, Gjöngeforingi?" „Eins og vera ber að reka erindi yðar hátignar, yður til fyllstu ánægju og gleði.“ „Þú kemur þá með peningana?" „Þeir liggja úti á sleðanum.“ „Öll upphæðin?" „Haldið þér, að ég rnyndi hafa gengið fram fyrir yður án þess, yðar hátign.“ „En livernig hefur þú farið að því að komast framhjá sænska hernum, er sett bafði varðsveitir á öllum vegum?“ „Við smeygðum okkur þar í gegn með ýmsum brögðum, og þar sem það nægði ekki, beittum við vopnurn, og þá létu Svíar okkur fara.“ „Þá grunaði ef til vill, livað þið höfðuð meðferðis?“ >,Já. ,,Og þið voruð þá ofsóttir og eltir?“ „Ofurlítið." ,,En þú slappst samt frá þeim heill á húfi?“ „Já, herra konungur minn!“ svaraði Sveinn brosandi. „Ég hafði of miklu að sinna í yðar þjónustu til þess, að ég mætti vera að því að særast eða sinna öðru.“ „Profecto!" sagði Friðrik konungur hressilega og neri saman höndunum. Ég hef svo sem heyrt sögur af allmörgum brögðum þínum og brellum, til dæmis þær, sem Nan- sen borgarstjóri hefur sagt mér. En þessa síðustu vil ég telja þá allra beztu. — Hefði Guð gefið Danmörku marga þína líka, mundum vér hafa átt betri kosturn að sæta.“ „Ekki ber ég á móti því,“mælti Sveinn blátt áfram. Konungur gekk nú út að glugganum og leit niður í húsagaiðinn. Upp í þennan glugga hafði Ib liorft í sí- fellu, síðan Sveinn fór frá honum. Og er hann sá konunginn fyrir innan rúðuna, tók hann ofan húfu sína og féll á kné í snjónum. „Hver er þessi maður fyrir utan?“ spurði, Friðrik konungur þriðji. Sveinn leit út til Ib og rnælti síðan: „Það er maður, sem ég á mikið að þakka. An hans hjálpar myndi ég ekki hafa getað rekið erindi yðar hátignar." „Mér virðist sem ég muni liafa séð hann áður.“ „Já, hann kemur líka einmitt í dag til að sanna, hve dyggilega hann hefur haldið heit sitt.“ ,Hvaða heit er það?“ „Að vera yðar hátign trúr og dyggur stríðsmaður." „Nú minnist ég þess, að hann átti tal við oss á Jungshoved í fyrra. Vér látum liann koma hingað inn.“ „Ég býst líka einmitt við, að hann bíði aðeins eftir leyfi.“ „En peningar vorir, Gjöngeforingi! Ég sé aðeins dauðan hjört á sleða þínum.“ „Hjörturinn er einmitt peningapokinn," svaraði Sveinn. „Og það sökurn þess, að við höfðum engan annan betri." Ib lá enn á kné niðri í húsagarðinum hjá

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.