Nýjar kvöldvökur - 01.04.1952, Blaðsíða 31

Nýjar kvöldvökur - 01.04.1952, Blaðsíða 31
N. Kv. Eva Marke: Kona vélfræðingsins Einar Guttormsson frá Ósi þýddi úr dönsku Saja vaknaði og leit á klukkuna á nátt- borðinu. — Klukkan var tíu. Hún minntist þess, að það var sunnudagur. Hún skotraði augunum til hvílubeðs mannsins síns. Þar var enginn. Þegar hún fór að sofa í gær- kveldi, var rúmið einnig autt. Þó leit út fyrir, að liann hefði legið í því. Hún ákvarð- aði sig í skyndi, snaraðist fram úr rúminu, fór í glæsilegu morgunskóna sína og smeygði sér í morgunsloppinn utan yfir þunnan náttkjólinn. Því næst lagði hún leið sína fram í eldhúsið. — Enginn þar heldur. En stóri, klunnalegi uppáhalds bollinn Jians Lars, stóð þar tómur á borðinu og við hlið- ina á lionum lá tesía, sem hafði verið sett hirðuleysislega frá sér, þannig, að nokkuð af teblöðunum hafði hrokkið út á dúkinn og samlagast þar brauðmyisnu og ostskorpu- molum. Af síunni var bersýnilegt, að hann hafði liitað sér tesopa og flýtt sér síðan burtu til mótorhjólsins, sem hann virtist ekki geta \ ið sig skilið, eða án verið, stund- inni lengur. — En hvers vegna einmitt í dag? Það átti þó engin keppni í akstri að fara fram í dag. Hún hafði ekki séð hann síðan hann fór út síðdegis í gærdag. Hann var sem sé ekki mikið heima — og J:>að í dag, á sjálfan hjúskaparafmælisdaginn Joeirra. Með tárin í augunum tók Saja sér sæti á stóli og andvarpaði. Þegar þau höfðu verið gefin saman, fyrir fimm árum, hafði lienni ekki komið til hugar að svona mundi það verða; — þá lialði maðurinn liennar liugsað mikið um hana og verið henni ástúðlegur. Fyrstu dagarnir, eftir hjónavígsluna, höfðu verið eins og dásamlegur draumur. Lars, sem hafði góðar tekjur, Iiaiði þá ekki spar- að gjafirnar handa henni; með fallegum föt- um og dýrmætum blómum hafði liann vilj- að gleðja liana. Jæja, — hann var þó alltaf indæll og elskulegur, það voru bara kapp- akstrarnir, bæði bíla og bifhjóla, sem kröfð- ust stöðugt meiri og meiri tíma — svo að hann, með einu orði sagt, gleymdi alveg konunni sinni. Þannig var J^að einmitt að vera gift vélfræðingi, sem bæði hafði heppn- ina með sér og var dáður af fjöldanum. — En það ætlaði hún ekki að sætta sig við, — ]dví skyldi senn verða lokið. Hún herti sig upp, stóð á fætur og fór að laga sér kaffisopa. Það var Jrýðingarlaust að láta Jætta fá mikið á sig. Síðan drakk hún kaifið og borðaði með því brauð. Að því búnu fór hún inn í baðherbergið og byrjaði að láta renna í kerið. Er hún liafði lokið við að klæða sig, eftir böðunina, staðnæmdist hún frammi fyrir speglinum og athugaði sig gaumgæfilega. Var hún ekki aðlaðandi lengur? Hún varð Jaó að kannast við það fyrir sjálfri sér, að jafnvel Jrótt hún hefði ekki Jjað lil að bera, sem tilskilið er um sérstaklegan fríðleik kvenna, Jrá leit hún þó einstaklega vel út. Hrafnsvart hárið hafði nýlega verið lagað — en eftir Jdví hafði víst Lars ekki einu sinni tekið. Blá augu hennar voru í senn bæði áhrifarík og í fullu samræmi við gullinbrún- an hörundslitinn og bogalína munnsins, eða munnsvipurinn, var fullkomlega eins og hann átti að vera. — Auk Jress sem hún var ennþá ung, var hún vel limuð og spengilega raxin. Lengra komst hún ekki í Jressum hugleið- ingum sínum, J>v í að síminn hringdi í dag-

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.