Nýjar kvöldvökur - 01.04.1952, Side 39

Nýjar kvöldvökur - 01.04.1952, Side 39
N. Kv. ENDURMINNINGAR KRISTJÁNS S. SIGURÐSSONAR 77 kenningar og algerlega réttindalausir. Seg- ist hann hvergi hafa séð það í bókum embættisins, að hér hafi verið gefin út sveinsbréf í mörg ár. En nú skuli þetta verða á annan veg framvegis. Nú líður fram í síðara hluta maímánað- ar. Bjarni Einarsson var þá einn af afkasta- mestu meisturum hér í bæ, bæði við húsa- byggingar, og þó sérstaklega skipasmíði og aðgerðir á skipum. Hafði hann einu sinni ráðið sig sem lærling hjá Snorra á þeirn tímum, sem Snorri stundaði skipasmíði. Hafði þeim kornið illa saman, og lauk því þannig, að Bjarni gekk í burtu eftir rúm- lega hálft annað ár. Eftir það fer Bjarni að vinna sem meistari og keppa við Snorra um skipasmíði. Urn þetta leyti liafði Bjarni 3 lærlinga. Áttu tveir þeirra að útskrifast þetta vor. Býst ég við, að sýslumaður hafi heimtað það af Bjarna, að hann léti pilta þessa gera sveinsstykki. Því að ég frétti, að sýslumaður hefði skipað tvo prófdómendur til að dæma um prófsmíði þeirra. Voru það þeir Sig- tryggur Jónsson og Snorri Jónsson. Á tilsettum degi fara þeir og skoða sveinsstykki þessara, og voru það algengar stofuhurðir. Felldu þeir báða piltana. Ekki er mér kunnugt, af hvaða ástæðu þeir féllu. Sennilega hafa hurðirnar ekki verið vel gerðar, því að ekki getur verið önnur ástæða til að fella rnann á sveins- stykki en sýnileg vankunnátta eða hroð- virkni. Bjarni og Snorri voru aldrei neinir vinir. Enda lagði Bjarni þetta þannig út, að Snorri hefði fellt strákana af tómri illgirni. Hvort Snorri hefur haft tilhneiging í þessa átt að gera Bjarna grikk þennan, veit ég álls ekki. En hitt er ég viss um, að Sigtrygg- ur hefði aldrei gengið inn á það, hefðu hurðirnar verið óaðfinnanleg smíði. Því að Sigtryggur var góður smiður og samvizku- samur. Þetta vor var Snorri að byggja hús Guð- mundar Hannessonar læknis. Og þennan vetur vann ég ekkert úti. Var ég alltaf að ljúka við hús Snorra og smíða hurðir og glugga í þau hús, sem byggja átti næsta sumar. Var ég nú búinn að smíða alla glugga í hús Guðmundar. Ekki hafði Snorri enn gengið inn á það, að ég smíðaði sveinsstykki, og var mér þó kunnugt um, að sýslumaður hafði talað um það við liann. Nú var korninn 6. júní, og þann dag átti nárni mínu að vera lokið. En nú átti ég eftir að vinna af mér þá 8 daga, sem ég fékk frítt síðastliðið sumar vegna andláts föður míns. Þennan dag segir Snorri mér, að það sé bezt að ég smíði hurðirnar í hús Guðmund- ar Hannessonar. Þær áttu að vera 8 alls og allar „kontrakýldar", sem kallað var, þ. e. a. s. strikaðar. „Síðan getur þú látið skoða eina hurðina sem sveinsstykki," segir liann. En þá tók hann fram, að ég rnætti srníða eina þeirra sérstaka, ef ég vildi. Vitanlega var Snorra ljóst, að ég mundi ekki smíða 8 strikaðar hurðir á 6 dögum. En það vissi hann, að mér var svo mikið kappsmál að fá sveinsbréfið, að ég myndi ekki hætta við þessar hurðir, fyrr en þær væru alveg fullgerðar. Þótti þá gott dags- verk að smíða eina stumpahurð á dag, þ. e. óstrikaða hurð. En láta mun nærri, að strik- uð hurð tæki þá hálfan annan dag. Ekki gat ég verið að sýta sökum þessa, þótt nokkrir dagar yrðu fram yfir tímann. Ég byrjaði því glaður á hurðunum og vann af miklu kappi og skeytti engu um réttan vinnutíma; enda hafði ég lokið við hurð- irnar á 10 dögum. Hafði ég þær allar undir í einu, því að það var fljótlegra. Ég var nú orðinn svo vanur hurðasmíði, að ég var ekk- ert smeykur um, að ég félli á þeim; enda þótt ég vissi, að Bjarni hafði heitið því, að ég skyldi falla. Þegar ég hafði lokið hurðasmíðinu, segir Snorri mér, að ég skuli nú velja eina beztu hurðina úr og láta dæma hana. Hinar hurð- irnar skuli ég setja upp á háaloft, svo að

x

Nýjar kvöldvökur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.