Nýjar kvöldvökur - 01.04.1956, Blaðsíða 40

Nýjar kvöldvökur - 01.04.1956, Blaðsíða 40
72 PITCAIRN-EYJAN N. Kv. orðna fólksins og barnanna, greip hann sú lilfinning, að hér færi fram sönn og einlæg guðsdýrkun í orðsins beztu merkingu. Hann fann nálægð guðs á þessari stundu. Þegar guðsþjónustunni var lokið, gekk fólkið til gestsins og bauð honum góða nótt, áður en það fór heim til sín. Er það var allt farið, fannst Webber framkoma mannsins vingjarnlegri en áður og hlédrægni hans minni. — Ég sé, að yður þykir mjög vænt um börn, herra Webber. Þér eigið líklega börn sjálfur. — Já. Ég á þrjú börn. Það elzta þeirra er á sama aldri og litli drengurinn, sem ég sat undir rétt áðan. Hver á hann? — Hann er sonur minn, þó að hann sé nú sem stendur hjá fóstru sinni. Það er of snemmt að ganga til hvílu, herra. Hafið þér nokkuð á móti því, að við fömm í stutta gönguferð. Skammt héðan er bekkur, þar getum við setið og notið kvöldkyrrðarinn- ar. Það er undur fagur staður og innan stundar kemur tunglið upp. Hann gekk á undan Webber eftir stíg, sem lá í áttina til flóans, en beygði síðan til bliðar út á götutroðning, sem lá í gegnum kjarrið upp á bjargbrúnina. Þar hafði litl- um og óvönduðum bekk verið komið fyrir. — Hér hef ég setið mörg kvöld, herra Webber, sagði hann um leið og hann settist niður. — Yður mun ef til vill finnast það ótrúlegt, herra, en oft hefur mér virzt ég heyra rödd guðs í bylgjuhljóðinu og storm- gnýnum, þegar ég hef setið hér. Sjáið þér, þarna kemur tunglið upp. Tunglið var komið upp fyrir sjóndeildar- hringinn og varpaði silfurskærri birtu yfir hafið langt fyrir neðan þá. Gestgjafinn sneri sér að gesti sínum. Hann virtist hika nokkur augnahlik, en sagði svo: Vafalaust hafið þér furðað yður á, að ég skuli ekki hafa sagt yður hvað ég heiti. Nafn mitt er Alexander Smith. Um leið og hann sagði þessi orð horfði hann rannsakandi í andlit Wehber, og þeg- ar hann sá engin svipbrigði, þagnaði hann. — Og þér hafið vafalaust furðað yður á fleiru, hélt Smith áfram eftir langa þögn. Þér hljótið að liafa hugsað um það, hverjir við í raun og veru erum. Við, sem lifum hér á þessari litlu eyju langt frá öllum öðrum. Stýrimaðurinn brosti. — Já, ég verð að viðurkenna, að mig langar til að vita það. Eg hugsa, að svo hefði verið um fleiri í mínum sporum. Smith sat álútur með olnbogana hvílandi á hnjánum og spennti greipar. Hann horfði hugsandi út á hafið, sem breiddist út fyrir framan þá í tunglsljósinu. — Ég er viss um, að þér eruð heiðarleg- ur og góður maður, sagði hann að lokum. — Ég get ekki trúað, að þér hafið nokkuð illt í huga. — Nei, það veit guð, sagði stýrimaður- inn alvarlega. — Verið alveg rólegur vin- ur minn. Ég mundi ekki gera yðar fólki mein frekar en minni eigin fjölskyldu. — Það, sem ég ætlaði að segja yður frá, herra Webber, gerðist fyrir mörgum árum. Allt í einu leit Smith snöggt á Webber og sagði: — Segið mér, hafið þér nokkurn tímann heyrt minnzt á skip, sem hét Boun- ty?, A augabragði rifjuðu þessi orð upp i huga Webbers sögu, sem fallin var í gleymsku. Hann hafði, líkt og flestir aðrir sjómenn á þeim tíma, heyrt mikið talað um uppreisn á lítilli vopnaðri freigátu, sem hafði verið send frá Englandi, til þess að sækja brauðaldintré til Tahiti og flytja þau lil Vestur-Indía. Hann mundi greinilega helztu atriði sögunnar, en örlög Bounty og
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.