Sjómannadagsblaðið - 04.06.1961, Blaðsíða 18
Sjómannadagurinr
Sjómannadagshátíðahöldin 1960 í
Reykjavík fóru fram sunnudaginn
12. júní og voru hin 23. í röðinni.
Veður var eins og bezt var á kos-
ið, hægviðri og bjartviðri. Strax um
morguninn blökktu fánar við hún
á flestum skipum í höfninni og víðs-
vegar um bæinn. K1 10.00 hófst
hátíðamessa í Laugarássbíói. Prest-
ur var séra Garðar Svavarsson, en
söngstjóri Kristinn Ingvarsson.
Guðsþjónustan var allvel sótt og hin
hátíðlegasta.
Kl. 14.00 hófust útihátíðahöld Sjó-
mannadagsins. Fánaborg var mynd-
uð á Ausurvelli með félagsfánum og
íslenzkum fánum, en ræðuhöld fóru
fram af svölum Alþingishússins. Séra
Óskar J. Þorláksson dómkirkju-
prestur minntist drukknaðra sjó-
manna, en Kristinn Hallsson óperu-
söngvari söng einsöng. JafnJramt
var blómsveigur lagður á leiði
óþekkta sjómannsins í Fossvogs-
kirkjugarði. Ávörp fluttu: Emil
Jónsson sjávarútvegsmálaráðherra
af hálfu ríkisstjórnarinnar. Hafsteinn
Baldvinsson skrifstofustjóri af hálfu
útgerðarmanna og Egill Hjörvar vél-
stjóri af hálfu sjómanna.
Formaður Sjómannadagsráðs
Henry Hálfdánarson afhenti Fjalar-
bikarinn, en það er nýr farand-
verðlaunagripur, fagur bikar gerð-
ur úr silfri, sem verzlunarfélagið
Fjalar h. f. Reykjavík afhenti Sjó-
mannadeginum 1960. Sá nemandi við
Vélstjóraskóla íslands, sem tekur
hæst fullnaðarpróf í vélfræði ár
hvert hlýtur bykarinn og skal nafn
hans letrað á hann. Bykarinn hlaut
að þessu sinni Guðlaugur Ketilsson,
Akranesi, en hann hlaut við fullnað-
arpróf í vélfræði frá Vélstjóraskóla
Islands 100 stig af 104 mögulegum.
Þá afhenti foim. Sjómannadags-
ráðs eftirtöldum sjómönnum heið-
ursmerki Sjómannadagsins: Auð-
unni Sæmundssyni, Grími Þorkels-
syni, Jóhanni Péturssyni, Sigurjóni
Kristjánssyni og Sigurði Einarssyni.
I Hafnarfirði hlutu eftirtaldir sjó-
menn heiðursmerki Sjómannadags-
2 SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ