Sjómannadagsblaðið - 04.06.1961, Blaðsíða 19
í Reykjavík 1960
ins: Ólafur Þórðarson, Halldór Teits-
son og Stefán Bachmann. Lúðrasveit
Reykjavíkur lék á undan hátíða-
höldunum og á milli atriða.
Afreksbjörgunarverðlaun Sjó-
mannadagsins voru ekki veitt að
þessu sinni.
Um eftirmiðdag fóru fram kapp-
róðrar í Reykjavíkurhöfn. Róðrar-
sveitir frá 8 skipshöfnum og 2 ung-
lingasveitum tóku þátt í kappróðr-
inum.
Áður en róðrarkeppnin hófst lenti
Eyjólfur Jónsson sundkappi í róðr-
arvörinni eftir velheppnað Viðeyjar-
sund. Var honum ákaft fagnað af
miklum mannfjölda, sem safnast
hafði saman við höfnina til að sjá
Eyjólf koma syndandi innan Sundin
og inn í höfnina og til að horfa á
kappróðrana.
Róðrarsveit M./s. Guðmundar
Þórðarsonar varð sigurvegari og
hlaut að verðlaunum Fiskimann
Morgunbl. og lárviðarsveig Sjó-
mannadagsins. June Munktell-bik-
arinn hlaut róðrarsveit m/s Ásgeirs.
Tími róðrarsveitanna var þessi:
m/s. Guðmundur Þórðarson 2 mín.
46,2 sek. m./s Ásgeir 2 mín. 50,4
sek. B/v. Jón forseti 2 mín. 50,7 sek.
m/s. Hafþór 2 mín. 53,0 sek. m./s
Goðafoss 2 mín 53,6 sek. Unglinga-
sveit SVFÍ. 2 mín 57,2 sek. m/s. Gísli
Johnsen 2 mín. 57,8 sek. t/s. USA
YOG 2 mín. 58,8 sek. m/s Bjöm
Jónsson 3 mín. 06,2 sek. og Ung-
lingasveit Sjóvinnunámsskeiðsins 3
mín. 07,6 sek.
Eins og svo oft áður féll Stakka-
og björgunarsundið niður vegna
þátttökuleysis.
Sjómannakonur létu ekki sitt eft-
ir liggja frekar en fyrri daginn.
Höfðu þær að vanda kaffiveitingar í
Sjálfstæðishúsinu og gáfu ágóðann
um 22 þús. krónur til jólaglaðnings
vistfólksins í Hrafnistu.
Sjómannadagurinn þakkar öllum
þeim sem veittu deginum lið sitt og
styrktu hann á einn eða annan hátt.
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 3