Sjómannadagsblaðið - 04.06.1961, Qupperneq 30
Hin foma Troizen var handan við turninn til hægri, grunnur hans er frá þriðju öld
f. Kr. í fjarlægð sést höfnin, þar sem flot Grikkja safnaðist saman fyrir orustuna við
Salamis.
bæði var ánægður með róðurinn
og sjálfan herinn. Hann horfði á
það, sem fram fór, allt í kring.
Hellusund var krökt af skipum,
og strendur þess og umhverfi þak-
ið hermönnum. Hann hældist um,
en brast svo skyndilega í grát.
Artabanus föðurbróðir hans var
nærstaddur og sagði: „Herra, hvað
veldur hinum skyndilegu skap-
brigðum þínum, fyrir andartaki
taldir þú þig sælan, en nú grætur
þú.“ Xerxes svaraði: „Ég fór að
hugleiða skammlífi mannsins, af
öllum þeim manngrúa, sem hér er
saman kominn, mun enginn verða
á lífi eftir hundlrað ár.“ Arta-
banus sagði: „Þó mannsæfin sé
stutt, er varla til sá maður hér eða
annars staðar, sem ekki óskar þess
oftsinnis, að hann væri dauður.
Erfiðleikamir steðja að, sjúkdóm-
ar þjá okkur og þess vegna verður
æfin of löng, þegar á allt er litið.
Svo þung er byrði lífsins, að við
kjósum heldur að deyja en lifa,
og reynsla manna sannar, að þó
guð gefi okkur að bragða á unaðs-
semdum lífsins er hann svíðingur
á gjafir sínar.“
Herstyrkur Xerxess í förinni til
Grikklands.
Skattlöndin lögðu til 1207 or-
ustuskip og áhafnir þeirra, 200
menn á hvert skip. A hverju
þeirra voru auk þess 30 bardaga-
menn Persa, Meda, eða Saka. I
flotanum voru 3000 galeiður 30
ræðara, með áttatíu manna áhöfn
hver. Þetta var sá floti, sem Xer-
xes lagði af stað með frá Asíu. Á
flotanum voru alls 517,610 manns.
í landhemum voru 1700,000 fót-
gönguliðsmenn, 80,000 riddaralið-
ar frá Libyu og úlfaldaliðar frá
Arabíu voru 20,000. Heildartala
liðsmanna í landher og flota, þegar
Xerxes fór frá Asíu, var því
2,317,610 manns. Auk þess var
þjónustulið hersins og menn, sem
önnuðust matvælaaðdrátt. Enn
fremur það lið, sem Xerxes safn-
aði að sér á leið sinni um Evrópu-
lönd. Þar verður lausleg áætlun
að nægja. Ætla má, að Grikkir í
Þrakíu og eyjunum við ströndina
hafi lagt til 120 skip með 24,000
mönnum, og ætla má, að Þrakar,
Pakonar, Eordar, Bottíar, Kalkí-
dear, Brygar, Pierar, Makedóníu-
menn, Dolopar, Magnetar, Akkear
og íbúamir í strandhéruðum
Þrakíu hafi lagt landhernum til
300,000 fótgönguliða. Heildartala
stríðandi manna í landher og flota
var þá 2,641,610. Gera má ráð fyr-
ir, að þjónustulið og fylgdarlið
hersins, skipsmenn birgðaskipa og
annarra fylgiskipa hersins hafi
verið jafnfjölmennir og sjálfur
herinn. Þegar landherinn kom að
Laugaskarði og sjóherinn að
Sepíuhöfða, stýrði Xerxes sonur
Dareioss 5,283,320 manna liði, því
þá var hann enn ekki farinn að
verða fyrir tjóni.
Þetta á við um hinn raunveru-
Orustan við Maraþon var háð á þessu svæði. Þarna sigruðu Grikkir Persa á valdatíma
Dareioss föður Xerxess. Orustan var háð 10 árum fyrir orustuna á Salamissundi
14 SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ