Sjómannadagsblaðið - 04.06.1961, Blaðsíða 48
Kafskip —
Hafskipið er eitt af því fáa, sem
staðið hefur af sér nýjungagirni og
hugmyndaauðgi mannsins gegnum
aldirnar, því í raun og veru er ekki
mjög mikill munur á holum trjá-
stofni, Indíánabáti eða langskipi vík-
inganna og þeim skipum, er nú sigla
um höf og vötn. Og þannig hefur
það verið gegnum aldirnar, skipin
hafa lítið breytzt hið ytra, — þ. e.
a. s. form skrokksins, þó vitaskuld
hafi orðið hæg markviss þróun í
búnaði, til að gera ferðir öruggari
og fljótari.
Skipið er nú einu sinni þannig, að
það þarf að vera ýmsum þeim kost-
um búið, sem erfitt er að samræma,
þannig að eitt verði ekki gert á
kostnað, hins. Það verður að vera
hraðskreitt miðað við vélarstærð,
og fara vel í sjó, þola óveður og
öldur úthafsins, og ótal margt ann-
að sem getur mætt einu fari á víð-
áttu hafsins.
Það er nú einu sinni svo, að skip-
ið hefur á seinni árum orðið helst
til seint í förum, miðað við aðra far-
kosti manna, svo sem bíla og flug-
vélar, þessvegna hefur margt verið
reynt til þess að auka hraðann, svo
það mætti verða til þess, að skipin
gætu frekar staðizt samkeppni við
önnur samgöngutæki, en þetta hefur
ekki reynzt tiltakanlega auðvelt.
Hraðskreiðasta skip, sem núna siglir
um höfin, mun vera brezkur hrað-
bátur, sem nær um 50 hnúta hraða
Þ. e.a. s. það er herskip' og ferðast
eftir yfirborðinu.
Skíðaskip Kafbátar.
Mönnum hefur nú um skeið verið
kunnugt, að frekari hraða er ekki að
vænta með' venjulegt skip. Annað
tveggja var að gera, að breyta veru-
lega til, eða leggja allt slíkt á hill-
una — og því hefur nú farið sem
fór, þrjár meginleiðir hafa fundizt,
tilí að breyta skipinu til hæfis við
tímann. Helícraft, eða loftpúðaskip,
sem „flýtur” á loftpúða yfir sjávar-
skorpunni, skíðaskipið sem flýtur
Hraðbátar
kyrrt á belgnum, en lyftst upp á
skíði, með vaxandi hraða — og svo
kafbáturinn.
Þó hin fyrrnefndu eigi ekki að
verða að umtalsefni hér, þá sakar
ekki að geta þess, að þau hafa vart
slitið barnsskónum ennþá. Loft-
púðaskipið; er aðeins til sem rándýrt
leikfang vísindamanna, en skíðaskip-
in eru þegar farin að sanna ágæti
sitt — að vísu ekki sem hafskip,
heldur sem hraðskreið vatnaskip og
ferjur, sem þjóta á styttri leiðum
með miklum'-hraða. Vafasamt er, að
þau verði nokkru sinni hafskip, því
ekki má verða vont í sjóinn, því skíð-
in þola ekki hnjask. Sennilegast þyk-
ir mörgum nú, að í framtíðinni muni
loftpúðaskipið og kafbáturinn ryðja
eldri gerðum skipa úr vegi.
Kafbátar til flutninga.
Þó það virðist í fljótu bragði vera
lítið unnið við að láta skip ferðast
neðansjávar í stað þess að halda sig
við yfirborðið, eins og öfum okkar
og langöfum reyndist bezt, en kost-
imir eru í fljótu bragði þessir: Niðri
í djúpunum gætir ölduhreyfingar-
innar ekki og önnur! lögmál ríkja
um hraða. Skipin geta því verið
nær ótakmörkuð að stærð. Sjóveiki
verður engin um borð í farþegaskip-
um og tafir af mótvindum úr sög-
unni. I raun og veru líkist nútíma
kafbátur mest risastórri flugvél, sem
„flýgur” um myrka veröld undir-
djúpanna.
Þó nothæfir kafbátar hafi nú ver-
ið til í nær hálfa öld — þ. e. a. s. til
hernaðar, þá hafa vissir örðugleikar
staðið í vegi fyrir þróun kafbáta til
friðsamlegra siglinga, þv sannleik-
urinn er nefnilega sá, að venjulegur
kafbátur getur ekki verið nema tak-
markaðann tíma í kafi í einu og hef-
ur ekki vélarorku nema stutta stund
í einu og mjög lítinn hraða neðan-
sjávar. Nú er þetta hinsvegar úr sög-
unni með kjarnorkukafbátunum.
Kjarnorkukafbáturinn hefur næga
vélaorku til að sigla langtímum sam-
an í kafi og hefur eldsneyti til lygi-
lega langs tíma. Hann nær „aðeins”
20 sjómílna hraða ofan sjávar, en
hvað hann getur í kafi, liggur að
vísu ekki á lausu, en er varla minna
en tvöfaldur sá hraði. Stjórntækin
eru svipuð og á flugvél, ogibáturinn
í laginu sem stórhveli.
Liprir og fljótir í snúningum.
I grein um kjarnorkukafbáta sem
birtist fyrir skömmu í bandarísku
tímariti, segir nokkuð frá getu þess-
ara skipa umfram fyrri kafbáta. Þeir
eru svo fljótir í förum og liprir í
snúningum, að tundurspillar, sem
eru liprustu og fljótustu herskip
vorra daga, og ná allt að 40' hnúta
32 SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ