Sjómannadagsblaðið

Árgangur

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1969, Blaðsíða 20

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1969, Blaðsíða 20
skipstjóri, lengst af á bv. Garðari, sem hann var lengi kenndur við, en þann 2. júní það ár, á sjómannadag- inn, tók hann formlega við fram- kvæmdastjórastöðu Hrafnistu, dval- arheimilis aldraðra sjómanna. Sigurjón kvæntist Rannveigu Vig- fúsdóttur frá Búðum á Snæfellsnesi þann 25. október 1918 og áttu þau því gullbrúðkaup á s. 1. hausti. Eign- uðst þau fimm börn, sem öll eru á lífi. Má fullyrða að við hlið eigin- konu sinnar hafi Sigurjón notið þeirrar hvatningar og ástúðar, sem hvað drýgst verður hverjum manni til athafna og dáða. Við giftingu sína höndlaði hann þá lífshamingju, sem entist honum í blíðu og stríðu þar til yfir lauk. A því tímabili, sem Sigurjón hóf sína sjómennsku, var lífsbaráttan hörð og oft óvægin. Skaphöfn hans hefur gætt hann í ríkum mæli þeim dugnaði og at- orku, sem hann hafði til að bera og hóf hann til forustuhlutverka bæði til sjós og lands. Þar við bættist að hann var skarp- greindur að eðlisfari, fljótur að átta sig á kjarna mála, og var mjög létt um að leiða þá í Ijós í ræðu og riti. 1927 tók Sigurjón við skipstjórn á bv. Surprise frá Hafnarfirði, hafði hann þá verið skipstjóri á bátum og stýrimaður á togurum um 10 ára skeið við góðan orðstír, en í þá daga tók tímann sinn að ná „toppnum", og náði honum aldrei nema úrvalið úr stéttinni. Vel aflaði Sigurjónn á Surprise og kom árangur þess bezt í ljós við að eigandi hans, hinn kunni útgerð- armaður, Einar Þorgilsson í Hafn- arfirði, lét byggja í Englandi togar- ann Garðar, sem Sigurjón tók við skipstjórn á 1930, og var með hann þar til hann fórst 1943 við strendur Bretlands, af völdum ófriðarins. Togarinn Garðar var særsta skip ís- lenzka flotans, meðan hann flaut. Traustbyggður og afburða sjóskip. Væri girnilegt til fróðleiks, ef ein- hverntíman fengist yfirlit um hið óhemju aflamagn, sem Sigurjón færði að landi á því skipi, bæði af síld og bolfiski. Eftir hið þunga áfall við missi uppáhaldsfleytu sinnar, Garðars, hélt Sigurjón áfram skipstjóm á togurum um 17 ára skeið. Hann hélt ávallt reisn sinni sem mikill aflamaður og snilldar sjómað- ur og stjórnandi. Sigurjón Einarsson. Það var engin tilviljun, að Sigur- jón var ráðinn fyrsti framkvæmda- stjóri Hrafnistu eftir nær 40 ára samfellda skipstjórn. Hann var með- al máttarstoða sjómannasamtakanna frá fyrstu tíð og meðal þeirra sem frumkvæði höfðu um stofnun þeirra. Fyrir fyrsta sjómannadaginn flutti hann í talstöð sína áskorun til allra skipshafna að fylkja sér um málefni sjómannadagsins. Sjálfur fylgdi hann áskorun sinni eftir með því að sigla skipi sínu, togaranum Garðari, frá Hafnarfirði til Reykjavíkur, full- skipuðum farþegum til þátttöku í sameiginlegri Sjómannadagshátíð. Þá og alla tíð síðan var hann meðal leiðandi afla þessara samtaka, hvar og hvenær sem hann gat því við komið. Hann átti sæti í Fulltrúaráði sjómannadagsins um nokkurra ára skeið og var þar m. a. varaformaður. I byggingarnefnd Hrafnistu átti hann sæti og sömuleiðis í fyrstu stjóm happdrættis D. A. S. Þegar Hrafnista tók til starfa, var margt ógert eða hálfklárað, sem í dag væri nauðsynlegt talið. Það hef- ur því ekki verið neinn leikur að hefja rekstur við þær aðstæður. Ég dreg reyndar ekki í efa að án eigin- konu sinnar hefði Sigurjóni reynzt illvinnandi að yfirstíga hina mörgu byrjunarörðugleika, en frá því fyrsta stóð hún við hlið manns síns og mót- aði með honum daglegar venjur og vinnubrögð. Þau voru bæði sam- hent um að gera sitt til að Hrafnista gæti orðið raunverulegt heimili þeirra, sem þar vistuðust. Ég leyfi mér að fullyrða, að dag- legum heimilisháttum og reglum, sem komið var á af þeim hjónum á Hrafnistu, verður seint breytt, enda hefur heimilið notið þessarar fyrstu mótunar til þessa dags. Eftir nær níu ára framkvæmda- stjórastörf Sigurjóns, kom upp ágreiningur milli hans og stjórnar Hrafnistu um stjórnunaratriði. Leiddi sá ágreiningur til þess að hann lét af störfum um áramótin 1965— 66. Þrátt fyrir þennan ágreining, sem nú er löngu úr sögunni, veit ég það, að bæði Sigurjón ogkona hans höfðu fundið, að stjórnin var á engan hátt að kasta rýrð á mannkosti þeirra og heiðarleika, þótt deilur hefðu komið upp um stjórnunarleiðir. Sigurjón var mjög virkur í félög- um og samtökum skipstjórnarmanna. Sat hann f jölda mörg þing Farmanna- og fiskimannasambands Islands og átti oft sæti í sjórn þess og stjórnum félaga skipstjórnarmanna. A þessum vettvangi barðist hann meðal annars fyrir aukinni menntun og réttindum og að öryggismálum þeirra. Ég átti sæti með honum í milli- þinganefnd, sem starfaði á árunum 1963—65 og kölluð var Sjóslysa- nefnd. Ég mun alltaf minnast ein- arðrar framkomu hans í þeim mál- um. Hann var ófeiminn við að segja félögum sínum til syndanna, ef hon- um þótti sjómennskuhæfileikar þeirra rýrir. Á vettvangi framan- greindra samtaka og í dagblöðum lét hann skoðanir sínar oft í ljós um aðbúnað togaranna og um friðun og nýtingu landhelginnar. Hann var eindreginn fylgismaður 6 SJOMANNADAGSBLAÐIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Sjómannadagsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.