Sjómannadagsblaðið

Árgangur

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1969, Blaðsíða 26

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1969, Blaðsíða 26
„Ég skal ekki vera langorður,“ hélt hann áfram og leysti bandið utan af pakkanum, sem hann hélt á í kjöltu sinni. „Eftir vopnahléð varð ég að yfirgefa England. Ég breytti nafni mínu og fór til Kanada. En saga mín, eða öllu heldur saga þeirra um mig, elti mig einhvern veginn. í Ottawa, Vancouver, Melbourne, Free- mantle, jafnvel í búsklandi Astraliu hitti ég einhvern uppgjafa mann úr sjóhernum, sem þekkti mig, og ég varð að halda flótt- anum áfram. Þá var það fyrir þrem árum síðan, að ég var að koma til Evrópu á flutningadalli frá Matadi, að það rann upp fyrir mér, þegar við sigldum fram hjá ströndinni, þar sem ég hafði verið á „Firedrake“, að það voru hér um bil upp á dag liðin tíu ár, síðan hinn dýrkeypti atburður skeði. Ég get ekki skýrt það, en það heltók mig ein- hvers konar forvitnistilfinning. Ég varð að fara 'þangað og líta staðinn aftur. Líklega „löngun glæpamannsins, til að hverfa aft- ur á vettvang glæpsins". En hver sem skýr- ingin er, þá fór ég. Við lögðum að bryggju í Antwerpen að morgni hins 29. og um kvöldið var ég í Nieuport. Ég fékk inni á þorpsgistihúsinu, þar sem aðeins einn annar gestur bjó, þögull Þjóðverji, lítið eitt yngri en ég sjálfur. Hann hét Bechtel — Gunnar Bech- tel. Við hittumst við kvöldverðinn, gisti- húseigandinn, kona hans, Bechtel og ég, og sátum öll við sama borð. Við eyddum löngum tíma yfir kvöld- verðinum, og það mun hafa verið liðið nærri miðnætti, þegar gestgjafinn og kona hans gengu til náða. Bechtel og ég sátum litlu lengur og lukum við vínið. Þá stóð hann upp, hneigði sig í afsökunarskyni, og fór — einnig, að ég hélt, til sængur. Ég lauk við pípu mína, reikaði út í for- stofuna, lauk upp útidyrunum og gekk eftir strætinu í átt til sjávar. Það var nokkurt tunglskin, og ég átti auðvelt með að komast gegnum runnana og niður að ströndinni. Ég horfði í vesturátt og mundi hvernig húsin gnæfðu forðum yfir okkur í austri og gekk rólega eftir hörðum sand- inum og hugsaði um allt það, sem síðan hafði skeð. Skyndilega sá ég út undan mér hvar maður sat á trébút. Mér brá nokkuð. En um það bil, sem ég ætlaði að halda áfram, þekkti ég að þetta var Bechtel, sambýlis- maður minn á gistihúsinu. Ég hló og kall- aði til hans alls hugar feginn. Þarna sátum við um stund, reyktum og röbbuðum saman. Að síðustu spurði hann mig, á sinn kurteislega hátt, hvað hefði lokkað mig til Nieuport í októbermánuði? Ég sagði honum þessa sögu nákvæmlega eins og ég sagði yður hana. Ég man, að þegar ég hafði lokið henni, varð ég hálf vandræðalegur, eins og ég hefði sagt of mikið. Svo að ég afsakaði mig með því að segja í gamansömum tón, „svo þér sjáið, Herr Bechtel, að ég er sá sem upprunalega vann styrjöldina", og stóð upp til þess að fara. Þjóðverjinn stóð einnig upp, lagði hönd sína blíðlega á handlegg minn. „Vitið þér hver ég er, vinur minn?“ spurði hann lágt. Ég hrissti höfuðið. „Ég er maðurinn sem tapaði styrjöld- inni,“ svaraði hann og horfði hreinskiln- ingslega í augu mér. „Ég er vörðurinn, sem þeir fimdu sofandi.“ Og það var satt. Bechtel var pilturinn, sem dottað hafði þessa nótt með nakin kné, og gefið mér hugmyndina með pilsin. I tíu ár hafði „synd hans“, eins og hann kallaði það, nagað samvizku hans og gert hann nærri sturlaðan. Og hann hafði vonað á sinn einfalda hátt, að ef hann snéri aftur á vettvang svívirðingar sinnar, myndi hann geta yfirbugað tilfinninguna. Síðan í stríðs- lok hafði hann horft á allar hörmungar byltingarinnar, á hungur fólksins, á millj- ónir ekkna og öryrkja, og hann hafði litið á allt þetta sem glæp sinn gagnvart Föður- landinu, því Bechtel vissi eins vel og ég, að hefði hann vakað þessa nótt hefði orust- an um Flandern orðið önnur saga, og að Þjóðverjar hefðu án nokkurs efa orðið í París um jólaleytið. Við stóðum þarna á sandhól í tungls- ljósinu og horfðum á hvorn annan, mað- urinn sem vann styrjöldina, og sá sem tapaði henni. Meira varð ekki sagt. Við snérum við og gengum rólega eftir strönd- inni, ég held þeir tveir einmanalegustu menn í víðri veröld .. Rödd Englendingsins nálgaðist hvísl, eins og hann væri að tala við sjálfan sig. Hann leit af glugganum á ferhyrndan böggulinn og úr svip hans lýsti óendanlegri þreytu. Waterloo-brautin var myrk, svona snemma morguns, nema hvað á krossgöt- um dingluðu ljósker, föl og mistruð í rign- ingunni. Og svartir prammarnir á Wille- broeck-skurðinum hjúfruðu sig hver að öðrum, eins og skordýr í kuldanum. Langt í burtu tindruðu ljósin í Brússel gegnum naktar trjágreinar. „Hvar er hann núna?“ Hafið þér séð hann síðan?“ spurði ég, snortinn forvitni, ásamt löngun til að segja eitthvað vin- samlegt. „Nei,“ svaraði Bradman, „ég sá hann aldrei aftur. Við skrifuðum hvor öðrum einu sinni á ári. Hann vann í málmsteypu í grennd við Dortmund. Fyrir viku síðan skrifaði hann mér frá sjúkrahúsi þaðan og sagðist ætla að þiðja mig um að gera sér greiða. Það munu verða ofurlítil óhrein- indi í skríni, skrifaði hann. Og hann bað mig um að grafa það á ströndinni við Nieuport.. „Og þangað er ég að fara núna,“ sagði Bradman, „og þetta er skrínið." Gætilega tók hann brúnan pappírinn utan af bögglinum, sem var á knjám hans, og í ljós kom lítil steinkrukka. Hann hélt henni þannig, að ég gæti lesið hina ein- földu áletrun: GUNNAR BECHTEL. Arngr. Guðjónsson þýddi. 12 SJÓMANnadagsblaðið
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Sjómannadagsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.