Sjómannadagsblaðið - 01.06.1984, Page 53
Ekki gerum við þó ráð fyrir að
William Shotton, en svo hét þessi
lærlingur, hafi órað fyrir að
hljóta afreksmerki Lloyds fyrir
sjómennsku, heiðursmerki, en
hann var reyndar fyrsti sjómaður-
inn, sem heiðursmerki þetta hlaut
hjá hinu virta félagi.
Saga hans er því í senn ævin-
týraleg og sönn.
Shotton ræðst á Trafalgar
Það var árið 1893, er Shotton
var að ljúka skyldunámi sínu um
borð í seglskipinu TRAFALGAR,
sem var venjulegt briggskip, er
lestaði tæplega 1700 tonn, og því
fremur stórt, að svo stóð á, að
skipið var að leggja upp í ferð með
kolafarm frá Cardiff í Englandi til
Brazilíu. Síðan átti skipið að
sigla tómt til New York, til þess að
lesta olíutunnur, sem fara áttu til
Bataviu á eyjunni Jövu.
Á vissan hátt var þetta ósköp
venjulegt verkefni fyrir seglskip
þess tíma, er sigldu í „tramp“
(flækingur), en ekki á ákveðnum
leiðum.
Hver ferð slíkra skipa gat tekið
2—3 ár, eða jafnvel fjögur ár, eða
frá því að þau létu úr heimahöfn,
þar til þau komu til baka — ef þau
þá gjörðu það.
Svo vildi til, að Shotton var að
ljúka siglingatíma sínum, eða
námstíma, þegar TRAFALGAR
lagði úr höfn í New York, eða öllu
heldur þá lauk hann tímanum,
eftir að skipið var lagt af stað til
Jövu.
Hann bjóst því við að verða
settur í land, eins og efni stóðu til,
þannig að hann gæti farið heim til
Englands og lokið þar prófi sem II.
stýrimaður.
En þetta voru erfiðir timar og
það þurfti nú meira en þetta til
þess að þeir væru að taka á sig
ómak vegna lærlinga á skipunum,
og því varð Shotton að sætta sig
við að gjöra svo vel og klára ferð-
ina með TRAFALGAR í stað þess
að fara heim.
Þetta urðu Shutton að sjálf-
sögðu töluverð vonbrigði, en þó
varð þetta honum til nokkurs
vegsauka, því skipstjórinn gjörði
hann nú að III. stýrimanni á
TRAFALGAR.
í raun og veru voru þó aðeins
tveir stýrimenn á skipinu sam-
kvæmt reglunni, en þetta hækkaði
Shotton lítillega í launum og hann
fékk nú að standa vaktir einn og
stýra miklu skipi, sem var nokkur
sárabót — og hann myndi án efa
auka reynslu sína og þekkingu til
muna.
Hann varð því fyrir bragðið
ekki eins bitur, og orðið hefði, ef
hann hefði aðeins verið neyddur
til þessarar löngu ferðar, vegna
skilningsleysis útgerðarinnar.
Þetta var nú gott og blessað, en á
hinn bóginn er ekki alveg eins víst,
að honum hefði verið eins innan-
brjóst, þegar siglt var frá New
York, ef hann hefði órað fyrir því
hverskonar dagar fóru í hönd um
borð í TRAFALGAR. Ef til vill
hefði hann látið skipið lönd og leið
og haldið heimleiðis?
Lipurogpersónuleg
þjónusta,
á besta stað í bœnum
og nóg af bílastœóum...
Ef þetta eru atriði sem þú metur mikils að
peningastofnunin þín uppfylli, er Sparisjóður
vélstjóra eitthvað fyrir þig.
Sparisjóður vélstjóra starfar í nýju og rúm-
góðu húsnæði að Borgarúni 18 og hefur frá
upphafi verið í fararbroddi í tölvuvæðingu og
hagræðingu. Þess vegna getum við tryggt
viðskiptavinum okkar hraða og örugga af-
greiðslu.
Ef þú hefur reglubundin viðskipti við okkur,
áttu svo að sjálfsögðu möguleika á lánafyrir-
greiðslu þegar hennarer þörf.
SPARISJÓÐUR
icpi VÉLSTJÓRA
^^,'0 ’ Borgartúni 18, s. 28577
ÓSA
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 53