Sjómannadagsblaðið

Árgangur

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1985, Síða 25

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1985, Síða 25
ull. Eftir að hafa fengið svo örugga staðar- ákvörðun og sett út í kortið, var þeim ljóst, að í stað þess að sigla sextíu til sjötíu mílur áfram hafði skipið hrakið um tutt- ugu og fímm sjómílur afturábak þá 36 klukkutíma, sem það hafði verið knúið á fullri ferð gegn fárviðrinu. Gulltoppur sigldi undir Jökul, en þar var stanzað og mannskapurinn kallaður á þilfar. Menn lagfærðu það, sem hægt var og brutu ís af skipinu. Þeir Friðfmnur Kjæmested stýri- maður og Sverre Smith loftskeytamaður hjuggu mesta ísinn úr framvantinum öðru megin og komust upp í mastrið. Þeim tókst að festa loftnetið í salninguna. Litlu síðar náði Gulltoppur loftskeytasam- bandi við TFA í Reykjavík og skýrði frá því, að þeir væru á heimleið. Sverre Smith hafði einnig samband við togara, sem voru inni á Patreksfirði og bar á milli fyrir þá skilaboð til Reykjavíkur. Þegar tekið var til í brúnni, fundust þar raktæki skipstjórans, sem hann annars geymdi á hillu við vaskinn í íbúð sinni. f áfallinu höfðu þau kastazt alla leið upp í brú. Sjóslysin í Halaveðrinu snertu alla þjóðina og margar fjölskyldur áttu um sárt að binda. 32 konur með um 90 böm innanvið 15 ára aldur misstu menn sína í Magnús Brynjólfsson, loftskeytamaður á Leifi heppna. veðrinu og margir einhleypir áttu fyrir öldruðum foreldrum að sjá, en samkvæmt skýrslum kom í Ijós að þannig höfðu 48 einstaklingar misst fyrirvinnu sína. Opinberar skýrslur telja að 68 íslend- ingarhafi týnt lífinu í þessum þyl, þeir voru af togurunum tveim og línubátnum, og einn maður lést af meiðslum er hann hlaut um borð í Gullfossi í veðrinu. Hafa verður í huga, að árið 1925 voru tryggingabætur mjög litlar. Dánarbætur fyrir sjómann voru kr. 2000 og kr. 200 til viðbótar fyrir hvert barn og bæturnar voru greiddar í eitt skipti fyrir öll. Á nú- gildandi verði munu þetta vera um 60.000 kr. Þó munu aðstandendur þeirra er fórust með Fieldmarshall Robertson hafa staðið nokkuð betur að vígi, þar eð breskar tryggingar voru betri og bætur hærri. Þá munaði einnig mikið um að efnt var til al- mennrar fjársöfnunar til styrktar ljöl- skyldum þeirra, sem fórust og þreytingar voru gjörðar á tryggingakerfinu. Varð það til þess að auka dánarbætur verulega, en þær skiptust milli 87 einstaklinga, sem misstu fyrirvinnuna. Hér verður ekki gjörð nein tilraun til þess að meta líftjón, afleiðingar, eða fé- lagsleg áhrif Halaveðursins, enda ekki á neins manns færi. Þó töldu sjómenn rétt að minnast þessa atburðar, þegar sextíu ár voru liðin. Helstu heimildir: Skipstjóra- og stýrimannatal. Vél- stjóratal 1911 — 1977. Sextíuárásjó, JónasGuðmunds- son. íslenskar æviskrár. íslenskir samtíðarmenn. Morgunblaðið. Sjómannafélag Reykjavíkur 50 ára starfssaga. í Særótinu, Sveinn Sæmundsson. Sagnir, 5. árgangur, 1984. Sjómannadagsblaðið. Sjómannablað- ið Víkingur. Öldin okkar. Veðurstofa íslands, veður- stofustjóri o.fl. munnlegar heimildir. Togarinn Leifur heppni. SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 25

x

Sjómannadagsblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.