Sjómannadagsblaðið - 01.06.1985, Blaðsíða 58
T
MINNINGARORÐ
Jón Sigurdsson, Fvíormaður
Sjómannasambands íslands
Jón Sigurðsson var fa*ddur 12. maí 1902, en lést
6. júlí 1984. Jón var fæddur í Hafnarfirði og voru
foreldrar hans Sigurður Jónsson og Guðrún Ásta
Gísladóttir. Hann byrjaði eins og önnur börn og
unglingar á þeim tíma, snemma að vinna og m.a. í
fiskvinnu en það var sjómennskan sem var draum-
ur hans sem annarra slíkra drengja sem af alþýðu-
mönnum voru komnir og 16 ára var hann byrjað-
ur á sjó. Hann var á mótorbátum, skútum og tog-
urum allt til ársins 1931 að hann var kallaður í land
til starfa fyrir stéttarsamtök sín.
Jón gekk árið 1924 í Sjómannafélag Reykjavíkur,
en |)á réðst hann einmitt á togara í fyrsta sinn.
Hann varð snemma trúnaðarmaður félagsins á
skipum sem hann starfaði á og var kjörinn ritari
Sjómannafélags Reykjavíkur, 1932 — 1934 og aftur
1951 — 1960. Hann var erindreki Alþýðusambands
íslands 1934 — 1940, framkvæmdastjóri Alþýðusam-
bandsins frá 1941 — 1944 og átti sæti í miðstjórn þess
um áratuga skeið. Þannig var sagt í stórum drátt-
um frá störfum Jóns í þágu íslenskra sjómanna-
stéttar, auk þess sem minnst var á Sjómannasam-
58 SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ
band íslands, er hans var getið í blöðum Reykjavík-
ur í júlí sl. er útför hans fór fram.
Það var ekki getið um það hve lengi hann hafði
verið ritari Sjómannafélags Reykjavíkur eða að
hann hefði verið formaður þess í meira en áratug,
en formaður varð hann 1961 og gegndi því til ársins
1972. En að sjálfsögðu var það þetta félag sem varð
grundvöllur þess að Sjómannasamband Islands
var stofnað því að undir stjórn Jóns sem þá var for-
maður Sjómannafélags Reykjavíkur var að þessu
unnið og það varð sá hornsteinn sem Sjómanna-
sam.bandið var byggt á. Það var stofnað
1957—1976 og viðurkennt sem aðili ASI á þingi
þess 1958.
Ég koin inn í stjórn S.R. sem ritari í sömu kosn-
ingum og hann varð formaður og varð einnig rit-
ari í stjórn hans í Sjómannasambandinu í rúman
Á haustfundi Sjómannadagsráðs árið 1984
minntist Pétur Sigurðsson, formaður tveggja fé-
laga, sem starfað höfðu í Sjómannadagsráði, en
höfðu látist frá því er seinasti aðalfundur var hald-
inn. Fara minningarorðin hér á eftir.
Pétur Gudmundsson, skipsíjórl
Þann 21. maí sl. dó Pétur Guðmundsson, skip- -
stjóri frá Reykjum. Hann var fæddur 18/12 1917.
áratug. Svo ég þekkti nokkuð vel til Jóns. Pólitík var
miklu stærri þáttur verkalýðsbaráttunnar á þeim
árum en nú síðustu 5 — 7 árin. Ég tel engan vafa
leika á að nauðsyn breyttra vinnubragða í núúma-
lega átt og sjálfsögð viðurkenning fjölmennra
hópa innan hreyfingarinnar, sem áður var haldið í
fjarlægð vegna pólitískra skoðana, á sinn þátt í
þessari þróun. í henni tókjón þátt og var forystu-
maður. En hann gleymdi aldrei uppruna sínum
eða þein i stefnu sem hann skipaði sér í fylkingu
með á unga aldri.
Hann var jafnaðarmaður alla tíð, en fyrst og
fremst baráttumaður fyrir bættu hlutskipti sjó-
manna í þjóðfélagi okkar. Við sendum eiginkonu
hans og börnum okkar innilegustu samúðarkveðj-
Hann var sonur þeirra merkishjóna, Ingibjargar
Pétursdóttur og Guðmundar Jónssonar, hins
þekkta togaraskipstjóra og mikla aflamanns. Pétur
ólst upp á Reykjum í Mosfellssveit ásamt bræðrum
sínum og upj)eldissystrum. Fór síðan í Gagnfræða-
skólann í Reykjavík. Síðan fór hann í Stýrimanna-
skólann í Reykjavík.
Hann varð fljódega, eftir að hann lauk prófi frá
skólanum stýrimaður og síðan skipstjóri á olíu-
skipum sem Skeljungur hf. átti. En Pétur átti jafn-
framt langan siglingatíma á fiskiskipum og milli-
landaskij)um þótt að megin lífsstarf hans hafi verið
unnið á Skeljungi og síðar á Kyndli við olíuflutn-
inga á hinar ýmsu hafnir í kring um landið.
Árið 1945 kvæntist Pétur Kristjönu M. Sigurðar-
dóttur og eignuðust þau þrjú böm, sem að öll em
uppkomin. Pétur sat hér nokkrum sinnum fundi
okkar í Sjómannadagsráði, bæði sem aðalfulltrúi
og sem varafulltrúi. Pétur var félagsmaður í Stýri-
mannafélaginu og síðar Skipstjórafélagi íslands.
Kona hans Kristjana Sigurðardóttir starfaði í
Kvenfélaginu Hrönn og var þar formaður í mörg
ár. Pétur var einn þeirra skipstjómarmanna sem
lét sig miklu skipta þegar að hafist var handa við að
byggja orlofshúsin í landi stýrimannafélagsins í
Laugardal. Hann var áhugasamur um öll þau störf
sem voru unnin á vegum Sjómannadagsráðs.
Við sem þekktum hann munum að kimni hans
og gamansemi var okkur, sem með honum vom
eftirminnileg. Að leiðarlokum flytjum við aðstand-
endum hans okkar innilegustu samúðarkveðjur.
Pétur Sigurðsson
Pétur Sigurðsson