Sjómannadagsblaðið - 01.06.1985, Blaðsíða 47
málmplötu á staur, sem viðeigandi
texti hafði verið grafinn á, en platan
fannst fyrir tilviljun 400 árum síðar.
Þar er kunngjört að landið tilheyri
bresku krúnunni frá og með 17. júlí
1579 og undirskriftin er Francis
Drake.
Þess er þó að geta, að ágreiningur
hefur ristið út af plötunni sjálfri og
telja ýmsir sérfræðingar að um vel
gjörða fölsun sé að ræða. Hér verður
þó ekki fjölyrt um þann málarekstur
og karp.
Heimleiðis — Ný ævintýri
Francis Drake notaði tímann vel í
Kalifomíu til þess að sjóbúa skip sitt
fyrir heimferðina. Löng leið var fyrir
höndum, yfir þvert Kyrrahafið, fyrir
suðurodda Afríku, og „vissara" var
svo að fara djúpleiðina framhjá
Norður-Afríku, Kanaríeyjum og
öðrum virkjum Spánska heimsveld-
isins. En förin gekk vel og eftir 14
mánaða úthald tók Francis Drake
höfn í Englandi, eða nánar til tekið
26. september 1580. Ferðin hafði tek-
ið hann tæplega þrjú ár.
Drake var tekið með kostum og
kynjum í heimalandi sínu og drottn-
ingin sæmdi hann aðalstign, fyrsta
Englendinginn, sem sigldi skipi sínu
umhverfis jörðina og fært drottningu
ingu sinni mikinn farangur af gulli og
gersemum.
En þetta var ekki eina útnefningin
sem Sir Francis Drake hlaut. Spánar-
konungur. æfur af bræði. útnefndi
hann Meistara sjóræningjanna í fjar-
lægum löndum, jafnframt setti Philip
II stóra fjárfúlgu til höfuðs honum.
Hver sem gat fært honum hann dauð-
an eða lifandi, átti að fá 100 þúsund
pund að launum, og sambúð Spánar
og Englands hafði versnað til muna
og eftirmálin á stjómmálasviðinu
urðu örlagarík. PáFinn í Róm bann-
færði Elízabetu Englandsdrottningu
og bannaði öll samskipti við hana og
páfi samdi við Philip Spánarkonung
um að hernema England og ætlaði
páfastóll að greiða offjár fyrir vikið.
Orsökin fyrir viðhorfum páfa áttu
samt eldri rætur, því sambúð Rómar
við England og ensku krúnuna og
kirkjuna, hafði vægast sagt verið
stormasöm, en endirinn á því máli
varð sem kunnugt er sá, að Hinrik
VIII sleit sambandinu við páfa, eða
rómversk kaþólsku kirkjuna árið
1543 og gerðist sjálfur æðsti yfirmað-
urensku kirkjunnar. Samt taldi Hin-
rik VIII sig vera kaþólskan átaram.
þótt hann virti ekki lengur vald páf-
ans í Róm til íhlutunar um mál ensku
kirkjunnar. Og við það sat, nema
Maria I, dóttir Hinriks VIII, endur-
nýjaði sambandið við páfagarð 1553,
en hún ríkti í fimm ár. Þessa skipan
mála endurskoðaði Elízabet I sem
ríkti í 45 ár. Hún sagði ensku kirkj-
una úr lögum við páfagarð á ný. Og
hún gerði fleira, hún lagði grunninn
að sjóveldi Breta, sem gerði landið
síðarað heimsveldi.
Þarna er að rekja ástæðurnar fyrir
heiftinni, og við bættist hernaður
Francis Drake og upptaka gífurlegra
auðæfa, sem varð auðvitað ekki til
þess að bæta sambúðina.
Öflug stofnun
á athafnasvæði.
Sparisjóðurinn í
Keflavík, Njarðvík
og Garði.
Sjóður
suðurnesjamanna.
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 47