Sjómannadagsblaðið - 01.06.1985, Blaðsíða 51
Fiskifélag íslands fagnar
merkum áfanga í útgáfustarf-
semi sinni, því í ár eru 60 ár liðin
frá því að félagið tók við út-
gáfu Sjómanna almanaksins af
Stjómarráðinu, sem frá 1914
hafði gefið út „Almanak handa
íslenskum fiskimönnum“, eins
og það hét þá. Þegar Fiskifélagið
tók við útgáfunni (1925) var
aðeins einn fastráðinn starfs-
maður hjá félaginu, en það var
Sveinbjörn Egilsson. Skömmu
síðar réðst Arnór Guðmunds-
son, síðar skrifstofustjóri, til
starfa hjá félaginu. Ritstjórn
Almanaksins lenti að mestu á
þeim og ritstjórn þess, síðar al-
farið á Arnóri allt til ársins 1961
er Þórarinn Ámason, nú fram-
kvæmdastjóri Aflatrygginga-
sjóðs, tók við, og sá hann um
ritstjórn til ársins 1970 er Guð-
mundur Ingimarsson tók við
ritstjórninni sem hefur séð um
hana til þessa.
Eins og allir sjómenn vita, þá
er almanakið hafsjór af allskonar
upplýsingum og fróðleik er
snertir störf sjómannsins. Er það
mikið lesið og notað um borð í
hverju skipi.
Löggjafinn taldi Sjómanna-
almanakið það mikilvægt rit
(öryggistæki) að sett var sérstök
reglugerð þess efnis að öllum
skipum 12 brúttórúml. að stærð
og stærri var gert skylt að hafa
almanakið um borð.
Sjómannaalmanakið er ekki
síður mikið notað í landi af út-
gerðarfélögum, hafnaryfirvöld-
um og fleiri aðilum um land allt,
enda þar að finna mikilvægar
upplýsingar um hvaðeina er
snertir fiskveiðar og siglingar að
ógleymdri skipaskrá um öll þil-
farsskip í eign landsmanna svo
og eigendur þeirra og nöfn
framkvæmdastjóra hlutafélaga.
Tveir góðir á loðnuveiðum.
FISKISKIPASTÓLLIININ
IÁRSLOKI9S4
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 51