Sjómannadagsblaðið - 01.06.1985, Blaðsíða 61
f
Sjóslys og drukknanir
— írá júní 1984 til 10. maí 1985
1984
10. maí
Drukknaði Óskar Jónsson, 66
ára, Eyrarvegi 6, Þórshöfn, er
hann féll útbyrðis af báti sínum,
þar sem hann var að vitja um línu
á Þistilfirði. Lætur eftir sig eigin-
konu og uppkomin börn. Bátur-
inn fannst fljótlega mannlaus,
flugvélin TF-JEG fann bátinn á
reki við Grenjanes. V.b. Sólveig
ÞH dró Bátinn til Þórshafnar.
13.maí
Drukknaði Eiríkur Gíslason, 57
ára, Snekkjuvogi 12, er v.b. As-
rún GK 204, 22ja feta flugfisk-
bátur sökk austur af Hrollaugs-
eyjum 4 sjm. frá landi. Annar
maður var á bátnum hann bjarg-
aðist. (Sjá bjarganir) þeir voru á
leið frá Vestmannaeyjum til
Hafnar í Hornafirði. Lætur eftir
sig eiginkonu og þrjú börn.
30. júní
Drukknaði Guðmundur Geirs-
son, 64ra ára, Mýrarholti 7,
Ólafsvík, í höfninni þar á staðn-
um, en hann hafði ætlað um borð
í v.b. Matthildi SH-67, sem hann
var á. Einhleypur, barnlaus.
16. okt.
Drukknuðu tveir menn, er v.b.
Sóley SK 8, 11 tonn, frá Hafnar-
firði fórst 10 sjm. NV af Garð-
skaga. Sigurður Kristján Jónas-
son, 33ja ára, Borgarhrauni 10,
Grindavík. Flugvél Iandhelgis-
gæslunnar TF-Sýn fann líkið á
floti. Náðist hann um borð í v.s.
Óðinn, en læknir frá þyrlu Varn-
arliðsins úrskurðaði manninn
látinn. Lætur eftir sig eiginkonu
og4 börn.
Robert Jónsson, skipstjóri, 35
ára Breiðvangi 13, Hafnarfirði.
Líkið hefur ekki fundist. Lætur
eftir sig eiginkonu og 3 börn.
1985
26. jan.
Lést Úlfar Páll Mörk, 35 ára,
Vesturbergi 74, af afleiðingum
höfuðhöggs um borð í Hvassa-
felli þ. 11. des. sl. er hann féll af
milliþilfari niður í undirlest er
skipið var í Vasa í Finnlandi.
Lætur eftir sig eiginkonu, eina
dóttur og 4 stjúpbörn.
31.jan.
Drukknaði Svanberg Olesen,
23ja ára, skipverji á b.v. Hólma-
nesi SIJ 1 frá Eskifirði er skipið
var að veiðum úti fyrir Austur-
landi. Veður var slæmt 7—8
vindstig. Var verið að taka inn
trollið, þegar sjór kom á skipið
er skipverjinn féll fyrir borð. Allt
var gert til að finna manninn, en
án árangurs. Lætur eftir sig eig-
inkonuog tvö börn.
12. febr.
Drukknaði Sveinn Ben Aðíal-
steinsson, 42ja ára, er banda-
rískur fiskibátur fórst undan
Alaska. Báturinn var gerður út
frá Seattle við Kodjakeyju. Læt-
ur eftir sig eiginkonu og tvö börn.
23. mars.
Drukknuðu 5 skipverjar á Ber-
vík SH 43, frá Ólafsvík, 36 lestir
er báturinn fórst skammt frá Rifi
á Snæfellsnesi. Úlfar Kristjáns-
son, skipstjóri, 43ja ára, Sand-
holti 44, Ólafsvík, lætur eftir sig
eiginkonu. Lík hans fannst.
Sveinn Hlynur Þórsson, stýri-
maður, 28 ára. Bæjartúni 13,
Ólafsvík. Lætur eftir sig eigin-
konu og eitt barn. Lík hans
fannst. Freyr Hafþór Guð-
mundsson, vélstj. 32ja ára,
Hjallabraut 7, Ólafsvík. Lætur
eftir sig eiginkonu og tvö börn.
Steinn Jóhann Randversson,
matsveinn, 48 ára, Vallholti 11,
Ólafsvík. Lætur eftir sig eigin-
konu og fjögur uppkomin börn.
Jóhann Óttar Úlfarsson, háseti,
19 ára, Sandholti 44, Ólafsvík.
Einhleypur. Lík hans fannst.
Hann var kjörsonur Úlfars, en
Úlfar og Steinn Jóhann voru
mágar.
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 61