Sjómannadagsblaðið - 01.06.1985, Blaðsíða 38
Hollandásiglingu.
Togarar og önnur
fiskiskip stækka
Þótt lítill hugur sé í íslending-
um og menn sjái lítt fram úr vand-
ræðum í útgerð, þá virðist mikill
sóknarhugur vera hjá keppinaut-
um okkar, sem koma fram með
margháttaðar nýjungar.
„ísbrjótur“ til rækjuveiða
við Austur-Grænland
Stærsta rækjutogara, sem smíð-
aður hefur verið í Danmörku, var
hleypt af stokkunum í Orskov
skipasmíðastöðinni í Frederiks-
Grænlensk/danski rækjutogarinn við sjó-
setninguna í Frederikshavn. Þetta er
stærsta og líklegast sterkasta fiskiskip,
sem smíðað hefur verið í Danmörku, en
skipið mun stunda rækjuveiðar við austur-
strönd Grænlands. Togarinn er tæplega
70 metra langur og er ekki nein smásmíði,
eins og myndin ber með sér.
havn i Danmörku um áramótin
og áætlað var að ljúka smíðinni
fyrir vorið. Skipið er í sameign
grænlenskra og dankra aðila, eða
Angmangsalikbæjar og O.P.
Mortensen á Borgundarhólmi, og
heitir sameignarfélagið Tasilag
hlutafélagið.
Togarinner byggður í ísklassa
1A, super, og er hann 70 metra
langur. í raun og veru er þessi
rækjutogari í engu frábrugðinn
ísbrjótum að styrkleika, og eru
botn og síður af sterkustu gerð, en
þessi yfirstyrkur mun gefa skipinu
möguleika til þess að stunda veið-
ar við Austur-Grænland, þar sem
skilyrði til fiskveiða eru einhver
þau örðugustu, sem menn þekkja
í norðurhöfum.
Sem áður sagði er þetta stærsti
rækjutogari sem smíðaður hefur
verið í Danmörku og án efa einn
sá stærsti sem til er.
38 SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ