Sjómannadagsblaðið - 01.06.1985, Síða 39
Bandarískum verksmiðjutogara hleypt af
stokkunum, en togarinn er ætlaður til
veiða á Atlantshafinu og verður aflinn full-
unninn um borð. Afkastageta er miðuð við
40 tonna afla á sólarhring. Togarinn er
rúmlega 70 metra langur og hlaut nafnið
Amfish.
Smíðaverð skipsins er um 260
milljónir króna (Ikr).
Þess þarf auðvitað ekki að geta
að fullkomin rækjuverksmiðja er
um borð, og ef til vill ættu íslend-
ingar að hyggja betur að þessum
veiðum! sbr. viðtal hér í blaðinu
við skipstjórann á Hilmi SU.
Hollenskir verksmiðjutogarar
Hollenskir útgerðarmenn ijár-
festu óhikað í nýjum fiskiskipum
á seinasta ári (1984) og aukin-
heldur hafa þeir gert tilraunir með
nýjar skipagerðir. Einna mesta
athygli vekur 95 metra langur
frystitogari DIRK DRIK, sem er
stærsta og fullkomnasta fiskiskip
sem Hollendingar hafa látið
smíða til þessa, en stærri verk-
smiðjuskip eru þó í smíðum.
Mjög góð útkoma varð víða af
verksmiðjutogurum og einna best
útkoma mun hafa orðið af Al-
aska-ufsaflökum í Beringshafi en
þar er gerður út floti verksmiðju-
togara. En sé aftur vikið að hol-
lenska togaraflotanum, þá hafa
bæst í hann, nýverið, tveir stórir
frysti- og verksmiðjutogarar AST-
RIDog HOLLAND.
Sá fyrmefndi getur fryst um 220
tonn af fiski á sólarhring, en full-
fermt tekur skipið 120 þúsund
kassa af frystum flökum (20 kg).
Skipið var smíðað í Hollandi.
ASTRID er 97.75 metra löng
og verður því stærsti togari Hol-
lands.
Astrid hinn 98 metra langi togari rétt fyrir
sjósetningu. Togarinn getur fryst 220
tonn af fiski á sólarhring og er stærsta
fískiskip Hollendinga.
ASTRID er með 6.600 hestafla
aðalvélar og mun sigla með 14
hnúta hraða, en skrúfan er 3.60 m
í þvermál, og gefur það hugmynd
um stærðina.
Mjög mikil sjálfvirkni er í skip-
inu, enda verða aðeins 32 menn í
áhöfn á þessu mikla skipi.
Þess má til gamans geta, að eig-
endur þessa nýja skips eru ekki
byrjendur í útgerð, en Kwakkel-
stein félagið sem á skipið verður
100 ára á næsta ári. Það á fyrir
annan frystitogara, MONIKA,
sem smíðaður var árið 1974 og er
aðeins 64 metra langur, og auk
þess tvö minni verksmiðjuskip,
ANITU og ELLY, en frá þessu er
greint til að sýna, að þetta fyrir-
tæki rennir ekki alveg blint í
sjóinn. Þá á fyrirtækið einnig
miklar frystigeymslur fyrir fisk í
Ijmuiden, en firmað á auk þess
hluti í mörguni fisksölu- og út-
gerðarfyrirtækjum, og er m.a.
meðeigandi í risatogaranum
HOLLAND, sem er 94 metrar á
lengd, en frystilestar skipsins eru
3400 rúmmetrar. Frystigeta 175
tonn á sólarhring. Aðalvél er
5.800 hestöfi og sjálfvirkni er beitt
til hins ítrasta.
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 39