Sjómannadagsblaðið

Árgangur

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1985, Síða 40

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1985, Síða 40
Sjóræninginn, sem sleginn var til riddara í febrúarmánuði árið 1573 klifraði ungurens.kurskipstjóri upp ítrjátopp á hæð einhversstaðar á landræmunni sem tengir Suður- og Norður-Amer- íku og sér til nokkurrar furðu sá til hafs til tveggja átta í senn, eða sam- tímis til Atlantshafsins og Kyrrahafs- ins. Þetta var söguleg stund, því þarna fór maður er síðar öðlaðist sess í veraldarsögunni, sem Sir Francis Drake, landkönnuður, ofurhugi og sjóræningi, sem fyrstur Englendinga sigldi skipi sínu umhverfisjörðina. Francis Drake klifraði aftur niður úr trénu, og þar eð hann vissi að eng- inn landa hans hafði siglt skipi um Kyrrahaf, féll hann á kné og bað al- mættið í hljóðri bæn að gefa sér tæki- færi til þess að sigla út á Kyrrahafið á ensku skipi. Og skemmst er frá því að segja að tæpum hálfum öðrum áratug síðar, eða árið 1577 lagði Francis Drake upp í þá sjóferð er hann þráði svo heitt. Þá stýrði hann flotadeild fimm skipa, er hafði það verkefni að ræna spænskum fjársjóðum með vopnavaldi og ennfremur til þess að ná tangarhaldi og fótfestu á landi í Nýja heiminum, eða í Vesturheimi. Þetta var að sjálfsögðu ekki fyrsta ránsferð Francis Drake á hendur Spánverjum, því hann var þegar orð- inn svo þekktur fyrir ránsferðir sínar að Spánverjar nefndu hann Meistara sjóræningjanna, eða einskonar yfir- þjóf á heimshöfunum. En hver var hann svo, þessi al- ræmdi sjóræningi, sem barægishjálm yfiraðra í þessari atvinnu? 40 SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ

x

Sjómannadagsblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.