Sjómannadagsblaðið

Volume

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1985, Page 49

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1985, Page 49
Konungur hófst handa við að sjó- búa spænska flotann í Cadis árið 1587, (hafnarborg skammt frá Gibr- altar) en Englendingar höfðu veðuraf herförinni. í spænsku flotadeildinni voru um 60 herskip, sem lágu á ytri höfninni, þegar Sir Francis Drake bar að með flotadeild 23 herskipa og gerði hann skyndiárás á spænska flot- ann á legunni og kom Spánverjum í opna skjöldu og í einu vetfangi lögðu Drake og menn hans eld í spænsku herskipin og eyðileggingin varð gífur- leg. Þeir létu þó ekki við það eitt sitja, heldur gengu þeir á land og eyddu borginni í hefndarskyni og hrópuðu aukinheldur vígorð gegn Spánar- konungi. Spánverjar vígbúast á ný En Spánverjar voru ekki af baki dottnir, þrátt fyrir þessi áföll og innan árs höfðu þeir endurnýjað flota sinn. Og reyndar höfðu þeir gjört meira. Þeir höfðu nær tvöfaldað flotastyrk sinn og áætlun þeirra var að sigla til Ermarsunds og þar átti þessi mikili floti að skýla herflutningaskipum og innrásarprömmum frá Niðurlönd- um, sem þá lutu stjóm Spánarkon- ungs. Var ætlun þeirra að hertaka Lundúnaborg og knýja síðan fram uppgjöf, en þeir friðarsamningar myndu auðvitað hafa kostað Bret- land sjálfstæði sitt. Segir nú ekki frekar af undirbún- ingi, en 19. júlí árið 1588 sást til spænska flotans frá Landsenda á Cornwall skaga. Og Drake var við öllu búinn. Tilbúinn til þess að berj- ast til síðasta manns fyrir drottningu sína og föðurland. Englendingar mættu óvinunum, sem fylkt höfðu flotadeildinni í hálfhring, en alls voru spænsku skip- in 130 að tölu. Og í upphafi beitti Drake þeirri tækni að ensku skipin sigldu umhverfis spænska flotann og réðust þeir á hvert skip fyrir sig. Drake valdi sér stóran galleon og mætti lítilli mótspyrnu, þegar spænska flotaforingjanum varð ljóst að hann átti í höggi við sjálfan Sir Francis Drake. Er skemmst frá því að segja að spænski flotinn var gersigr- aður og það sem eftir var af skipum flúði til hafs. Þótt þetta væri síðar talin ein mesta sjóorusta aldarinnar, var hetjan Sir Francis Drake síður en svo sestur í helgan stein. Hann hugði á frekari hernað gegn Spánarkonungi og nú hafði hann verið útnefndur flotafor- ingi, eða Drake aðmíráll. Það var þó ekki fyrr en átta árum síðar, sem hann lét næst til skarar skríða gegn Spánverjum, en það var árið 1596 er hann lagði upp í eina ferðina enn til Vestur-Indía, en þá veiktist hann um borð í skipi sínu og í banalegunni leit hann til strandar til Nombre de Dios, þarsem hann hafði unnið sinn fyrsta sigur á Spánverjum. Og þótt menn séu ósammála um margt, sem Sir Francis Drake tók sér fyrir hendur um dagana, ber hann sem sjómaður og herforingi ægis- hjálm yfir aðra skipstjóra og flotafor- ingja á 16. öld. Hann hafði víðtæk áhrif á stjórn- málasögu Evrópu og eflingu breska heimsveldisins. Skoðun og viógeróir gúmmíbáta allt áriö. Teppi og dreglar til skipa ávallt fyrirliggjandi. GÚMMÍBÁTAÞJÓNUSTAN Eyjargötu 9 Örfirisey Sími: 14010 Glettingur hf. Þorlákshöfn Fiskverkun — Útgerð Símar 99-3757 — 3957 SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 49

x

Sjómannadagsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.