Sjómannadagsblaðið - 01.06.1990, Qupperneq 77
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ
75
ið saman í sjómannamessu. Kirkjan á
svo margt sameiginlegt með sjó-
mönnum. Kirkjuhúsið er oft kallað
skip og turnar þeirra teygja sig upp
rétt eins og möstur skipanna. Turn-
arnir benda upp til þess, sem öllu
stjórnar og ræður sjó og vindum. Og
þetta gera möstur skipanna líka. Úti
á hafinu, þegar skip ber við sjón-
deildarhringinn, er eins og mastrið
tengi haf og himin.
Þessi snerting sjómannsins við
sköpunarverkið og þann ógnarkraft,
sem í hafinu býr, leiðir huga hans að
þeim mætti, sem öllu þessu ræður.
Sjómaðurinn kann að virðast hrjúfur
og harður af sér. En ég er ekki viss
um, að hann sé jafn harður í gegn.
Sjómennskan gefur honum skel sem
hann notar í baráttu við Ægi, fjarri
fjölskyldu og vinum.
Það er einnig vissa mín, að sjó-
menn séu ekki síður trúaðir en aðrir.
Þeir hafa ekki sama tækifæri og aðrir
til kirkjusóknar og verða því að
rækta trú sína með öðrum hætti. En
sjómönnum er hlýtt til kirknanna,
sem gjarnan heilsa þeim fyrst, með
háum turnum sínum, þegar komið er
að landi. Söfnuðurinn er líkur skips-
höfninni. Skipstjórinn og presturinn
fara fyrir sínu liði en báðir þekkja
þörf sína á blessun Guðs.
Þessi vissa, að Guð vaki yfir og
heyri allar bænir fleytir okkur fram-
hjá skerjum og boðum. Sjómaðurinn
á sína trú og ég veit, að hún er honum
heilög. Hann lifir í það miklu sam-
bandi við skaparann, að hann ber
virðingu og traust til hans.
Þannig er ég viss um það, að bæn-
irnar eru margar, sem stíga til him-
ins, frá öllum þeim fjölda skipa, sem
á miðunum eru. Þannig get ég sagt
frá því hér, að það er minn vani að
ganga aldrei til svefns úti á sjó án þess
að biðja „FAÐIR VORIГ. Þá er
hugsunin bundinn skipi og áhöfn
jafnt og ástvinunum, sem heima eru.
Ábyrgðin er mikil, sem á stjórnand-
anum hvílir, en hún er ekki síður
fólgin í því, að hver og einn sinni
starfi sínu með ábyrgð. Og þeir sem
heima eru geta líka lagt sitt að mörk-
um, því bænin er sameiginlegt mál
okkar allra.
Ég vil biðja íslenskum sjómönnum
og fjölskyldum þeirra blessunar
Guðs og vona að dagurinn verði
þeim öllum hátíðardagur.
Guð blessi ykkur öll.
Á Sjómannadaginn
Sendum öllum íslenskum sjómönnum
árnaðaróskir á hátíðisdegi þeirra.
Samvinnubanki íslands
Hraöfrystihús Eskifjaröar
Símar 97-61121 og 97-61123
Starfrækir:
Hraðfrystihús, saltfiskverkun, síldarsöltun, loðnubræðslu,
skreiðarverkun, netaverkstæði, vélaverkstæði, Rækjuverksmiðju.
SELJUM ÍS OC BEITU
Útgerð: Hólmatindur SU 220 — Jón Kjartansson SU 111 —
Hólmanes SU 1 — Guðrún Þorkelsdóttir SU 211 — Hólmar SU 11