Sjómannadagsblaðið - 01.06.1990, Blaðsíða 79
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ
77
SAGA SJÓMANNADAGSINS Á AKUREYRI
Jón Hinriksson:
SJÓMANNADAGURINN Á
AKUREYRI 4. JÚNÍ 1939
egar þau tíðindi bárust hing-
að til Akureyrar vorið 1938,
að stéttarfélög sjómanna í
Reykjavík og Hafnarfirði hefðu
ákveðið að halda hátíðlegan fyrsta
sunnudag í júnímánuði sem sérstak-
an hátíðisdag sjómanna, ræddu ýms-
ir um að sjálfsagt væri, að halda hann
hátíðlegan hér líka. En þar eð undir-
búningstíminn var mjög stuttur, var
horfið frá því í það sinn.
Um áramótin næstu hóf svo Guð-
mundur L. Guðmundsson, formaður
Skipstjórafélags Norðlendinga máls
á þessu í félagi sínu, og var þar kosin
5 manna nefnd til undirbúnings.
Nefndin ræddi þetta síðan við Sjó-
mannafélag Akureyrar og Vélstjóra-
félag Akureyrar, og kusu þau félög
einnig nefndir. Allar þessar nefndir
komu síðan í eina nefnd, og hlaut
hún nafnið Sjómannadagsnefndin.
í stjórn voru kosnir:
Formaður: Þorsteinn Stefánsson,
Skipstjórafélagi Norðlendinga, rit-
ari: Tryggvi Helgason, Sjómannafé-
lagi Akureyrar, féhirðir: Tryggvi
Gunnlaugsson, Vélstjórafélagi Ak-
ureyrar. — Vegna fjarveru Þorsteins
Stefánssonar, tók við formannsstörf-
um Guðmundur L. Guðmundsson
skipstjóri.
Nefndin ákvað, að væntanlegur
ágóði dagsins skyldi ganga til Björg-
unarskútusjóðs Norðlendingafjórð-
ungs.
Sjómannadagurinn á Akureyri fór
fram í aðalatriðum fram þannig:
Um morguninn voru fánar dregnir
að hún á öllum skipum, sem lágu á
höfninni, einnig víða um bæinn.
Merki dagsins voru seld allan dag-
inn. Ungu stúlkurnar voru duglegar
Jón Hinriksson.
að selja, þó skaraði ein þeirra (Ása
Guðmundsdóttir úr Reykjavík) langt
fram úr. Hún seldi fyrir um 300 krón-
ur, eða tæplega Ve hluta þess, er selt
var.
Kl. 10 f.h. hófst hóganga sjómanna
frá innri hafnarbryggjunni. í göng-
unni tóku þátt stéttarfélög sjómanna
hér: Skipstjórafélagið, Sjómannafé-
lagið og Vélstjórafélagið, og undir
merki þeirra skipuðu sér aðkomusjó-
menn, sem staddir voru í bænum.
Gengið var út Hafnarstræti og
Brekkugötu, niður Gránufélags-
götu, suður Norðurgötu upp Strand-
götu og staðnæmst á Kaupvangs-
torgi. Hópgangan var fjölmenn og
fór skipulega fram.
Athöfnin á torginu hófst með því,
að Guðmundur Pétursson, útgerðar-
maður, mælti nokkur velviljuð orð í
garð sjómannastéttarinnar, og til-
kynnti, að Útgerðarmannafélag Ak-
ureyrar hefði gefið bikar til verð-
launa í kappróðrinum.
Þá sté í stólinn séra Friðrik J.
Rafnar. Talaði hann um líf og starf
sjómanna, og hversu þýðingarmikið
það væri fyrir þjóðarheildina. Einnig
minntist hann hinna mörgu sjó-
manna, sem í baráttunni við Ægi
hefðu hlotið hina votu gröf, og bað
mannfjöldann að minnast þeirra með
einnar mínútu þögn. — Karlakórinn
„Geysir“ söng á undan og eftir
prédikuninni.
Kl. 4 e.h. hófst kappróðurinn við
höfnina. í honum tóku þátt 6 báts-
hafnir af þessum skipum: „Hjalteyr-
inni“, „Jarlinum“, „Rúnu“ og „Ol-
af“, ein frá Sjómannafélagi Akureyr-
ar, og önnur frá Vélstjórafélagi
Akureyrar. Róið var frá innri hafn-
arbryggjunni út að Torfunesbryggju,
rúmlega 800 metra vegalengd 4 ræð-
arar voru á hvorum bát auk stýri-
manns. Fljótastir urðu milli marka
ræðararnir af „Jarlinum“, réru vega-
lengdina á 4 mín. 59.5 sek., og hlutu
því bikar Útgerðarmannafélagsins.
Ræðararnir voru: Guðvarður Vil-
mundarson, Finnur Daníelsson, Jó-
hann Hafstein og Jón Gestsson.
Stýrimaður: Þórhallur Einarsson.
Næstir urðu að marki ræðarar Vél-
stjórafélagsins á 5 mín. 05,4 sek. og
þriðju ræðarar af „Olav" á 5 mín.
07,2 sek.
Að kappróðrinum loknum, kom
m.s. „Kristján“ á fullri ferð upp und-
ir Torfunesbryggjuna, hægði þar
ferðina, bátarnir voru látnir síga í sjó
niður, skipverjar hlupu í þá, og réru
síðan frá skipinu og köstuðu nótinni,
til þess að lofa áhorfendum að sjá
aðferðina við að veiða síld í herpinót.
— Bryggjan og skipin við hana — var
þéttskipað áhorfendum, og fylgdust
þeir með athygli með því, sem fram