Sjómannadagsblaðið - 01.06.1990, Qupperneq 104
102
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ
TOGARAÖLD Á AKUREYRI
Fyrsti togari Akureyringa,
Helgi magri var lítill þýsk-
byggður togari 136 tonn,
smíðaður 1891, en keyptur hingað til
lands 1913, af þeim Asgeiri Péturs-
syni og Stefáni Jónassyni, sem jafn-
framt var skipstjóri, og átti sjötta
hluta í skipinu. Þeir gerðu Helga lítið
út á togveiðar, heldur á síld og línu-
veiðar og var Helgi magri af því síðar
flokkaður undir línuveiðar, en togari
var hann smíðaður.
Eftir 1916 átti Asgeir skipið einn og
kannski allt til 1929, að það var selt til
Þingeyrar og hét þá Nonni. Helgi
magri var rifin í Reykjavík 1935.
Þá næst þessu er líklega togarinn
Stefán Jónasson.
Rán, líka þýskbyggður togari, 262
tonn, og var keyptur til landsins af
hlutafélaginu Ægi til Hafnarfjarðar
1915, og þangað er skipið örugglega
komið aftur 1924.
Asgeir mun hafa gert skipið út á
síld og eitthvað til togveiða. Hlutafé-
lagið Rán í Reykjavík er eitthvað að
þvælast fyrir í sambandi við Ásgeir
og Ránina, en það heyrir undir
Braga Sigurjónsson að athuga það
mál. Hann hefur þegar fitjað uppá
sögu af Ásgeiri og er rétti maðurinn
Helgi magri.
til að skrifa skilmerkilega sögu þessa
mikla útgerðarmanns.
Ránin átti góða sögu síðar sem
síldveiðiskip, en þá var þar skipstjóri
Guðmundur Sigurjónsson, einn af
mestu síldarskipstjórum landsins ár-
um saman. Ránin var lítið fallegt og
gott skip, eins og allir þýskbyggðir
togarar hafa reynzt okkur íslending-
um, en það var oftast hallærisútgerð
á skipinu, og það gekk milli margra
eigenda. Það er svo um sum skip, að
það er eins og einu gildi hver á þau.
En langa átti þó Ránin ævina. Hún
var smíðuð árið 1915 en seld til Fær-
eyja 1946, og nú trúlega löngu horfið
af sjó, og farið í brennsluofna. Út-
gerðarfélag KEA mun hafa keypt
gamlan togara 1938, en gert hann út á
sfld og ísfiskflutninga á stríðsárun-
um. Skipið strandaði fyrir austan.
Ekki kann ég meira að rekja akur-
eyrska togarasögu, fyrir þann tíma,
að Akureyringar stökkva inn í tím-
ann eins og Appollo úr höfði Seifs,
fullskapaðir togaramenn.