Sjómannadagsblaðið

Volume

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1994, Page 34

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1994, Page 34
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 32 „Þar sem ég hafði uppi einhvern forhertan munnsöfnuð hlaut ég að enda í stjórn!44 Rætt við Örn Steinsson fyrrum forseta FFSÍ og formann Vélstjórafélags Islands um 16 ára bil • • rn Steinsson vélstjóri er einn þeirra sem hvað leng- sta reynslu hefur af félags- málum vélstjórastéttarinnar og hef- ur gegnt ótal trúnaðarstörfum fyrir hennar hönd. I þessu viðtali bregð- ur hann bliki yfir sitthvað frá liðn- um tíma sem margt er tekið að falla í gleymsku eins og verða vill. Meðal annars riljar hann upp skólaárin í Vélstjóraskólanum hjá M.E. Jes- sen, fyrsta verkfallið undir merkj- um FFSÍ 1957 og tilraunir FFSÍ manna til þess að hefja kaupskipa- og frystitogarútgerð. Hann fylgist stöðugt með því sem hæst ber á fé- lagsmálasviðinu og hefur sínar skoðanir á framvindunni. En eins og vera ber byrjum við á að spyrja hann um uppruna og æskuár „Ég er fæddur í Reykjavík þann 26. maí 1921. Faðir minn var Jóhann Steinsson vélstóri hjá Eimskip, lengst á gamla Selfossi og þá á Fjallfossi. Móðir mín var dönsk og hét Ester Jud- ith. Ég var byrjaður að fá nasasjón af sjómennsku um fjórtán til fimmtán ára aldurinn, fyrst sem messi eins og gengur, en strax þá kom á daginn að ég þjáðist af sjóveiki og náði ég mér aldrei af henni. Fyrir vikið varð ég að gefast upp við sjómennskuna þegar á reyndi, þótt hún væri það starf sem ég helst þráði að stunda." í Vélstjóraskólanum hjá M.E. Jessen „Ég settist í Vélstjóraskólann haustið 1939 eftir að hafa lokið tilskildum smiðjutíma, en honum lauk ég í Vél- smiðjunni Hamri. Vélskólinn tók þá þrjá vetur, tvo í vélfræðideild og einn ,,Mér finnst að sjómenn séu ekki hafðir nœgilega mikið með í ráðum. Því er ég nú miklu fremur en jyrr á því að þessi gamla hugmynd Guðmundar Jenssonar um sjómannaflokk sé raunhœfúr kostur. “ (Ljósm. Sjómannadagsblaðið / Björn Pálsson) í rafmagnsfræðideild. Vildi ég gjarna fara í þessu spjalli nokkrum orðum um gamla Vélstjóraskólann sem flest- ir eru farnir að gleyma nú. Þegar ég settist í skólann gáfu mjög fáir sig fram til þessa náms. Innrituð- ust aðeins fjórir nemendur um leið og ég og þegar kom að lokastiginu, raf- magnsfræðideildinni, vorum við að- eins þrír. Svo virtist því um þessar mundir sem vélstjóramenntunin væri að lognast út af. Sá tími sem ég var þar við nám var sérstæður fyrir það hversu fáir nemarnir voru. En hann var líka frábrugðinn því sem nú gerist að því leyti að agi var þá miklu meiri skólanum. Kennararnir vori skemmtilegar manngerðir og ólíkii flestum þeim kennurum sem ég þekki til nú á dögum og langar mig að fara nokkrum orðum um þá hér. Skólastjóri á mínum tíma var gamli M.E. Jessen, afar lifandi og skemmti- legur kennari. Hann auðveldaði okkur heilmikið námið með því að skjóta ýmsu skemmtilegu inn á milli þyngra námsefnis og stærðfræðiútreikninga. Oft lék hann fyrir okkur ýmsar vélar og vélarbilanir sem við vorum að fást við, svo að þær stóðu eiginlega ljóslif- andi fyrir framan okkur. Þetta kom sér vel því þegar ég hóf nám voru engar kennsluvélar til við skólann. Að vísu höfðum við kynnst ýmsum skipavél- um í námi okkar á vélaverkstæðunum, en með leikhæfileikum sínum tókst Jessen furðu vel að bæta það upp sem á vantaði og síðar kom. Til marks um greind hans má nefna að á þessum árum voru logrithmar mikið notaðir við kennsluna. En Jessen þurfti aldrei að slá upp í logarithmatöflunum - hann virtist kunna þær allar utanað - þessar óteljandi sex stafa tölur! Aðrir kennarar þessa fámenna nem- endahóps voru allir mjög góðir. Má þar nefna Magnús Finnbogason, af- bragðs íslenskukennara. Hann var strangur en mikið góðmenni. Magnús kenndi einnig dönsku, ensku og þýsku. Síðar sagði hann upp starfi sínu og hóf kennslu við Menntaskól- ann í Reykjavík. Ég hitti hann nokkr- um árum síðar og tjáði hann mér þá að hann hefði gert mikil mistök með því að fara frá Vélskólanum og fann ég að hann saknaði mjög skólans. Enn má nefna Astvald Gíslason sem kenndi stærðfræði, en stærðfræði- kennsla hefur ávallt verið mikil í Vél-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110

x

Sjómannadagsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.