Sjómannadagsblaðið

Årgang

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1994, Side 45

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1994, Side 45
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 43 S „Eg veit oft ekki af fyrr en hugmyndir mínar eru orðnar að veruleika!“ Heimsókn til Jósafats Hinrikssonar iðnrekanda sem komið hefur upp glæsilegasta sjóminjasafni landsins í höfuðstöðvum fyrirtækis síns að Súðarvogi 4 í Reykjavík JósafatHinriksson og ritstjóri Sjómannadagsblaðsins skoða ,,Eldsmiðjuna“ semfaðir Jósafats, Hinrik Hjaltason, stofnaði árið 1926 á Neskaupstað. (Ljósm. Sjómannadags- blaðið t Björn Pálsson) Uppi á lofti í norðurenda stór- byggingar þeirrar sem hýsir umsvif Jósafats Hinriksson- ar iðnrekanda að Súðarvogi 4 í Reykjavík hefur á fimm og hálfu ári orðið til glæsilegasta sjóminja- og smiðjumunasafn landsins, en það var opnað haustið 1988. Þeir sem heimsækja safnið leggja fyrst leið sína upp hringstiga í allháum gler- turni og þegar upp kemur blasir safnið við - og vekur þegar furðu vegna stærðar og fjölbreytni. Sjó- mannadagsblaðið sótti Jósafat heim og margs þurfti að spyrja: Hvernig hefur einstaklingur haft burði til að koma öðru eins safni upp af eigin rammleik, bæði hvað varðar þá óhemju vinnu og fjármuni sem þetta hefur kostað? Þá eru þær spurningar ekki fáar sem sjálfir safngripirnir vekja en ekki nema örfáu gefst tóm til að fá svarað eða lýsa í þessu spjalli. „Safnið opnaði ég með viðhöfn þann 15. október 1988 á aldarafmæli föður míns, Hinriks Hjaltasonar járnsmiðs og vélstjóra í Neskaupstað," segir Jós- afat Hinriksson. „Þetta var eftirminni- legur dagur því margt fyrirmanna í þjóðlífinu sótti mig þá heim og gæti ég talið mörg þekkt nöfn. Þar sem safnið er helgað minningu föður míns er ekki fráleitt að byija á að benda á smiðju hans sem ég hef endurreist í fullri stærð hérna inni. Þar er því ekki um neitt „módek' að ræða. Mikill hluti smiðjunnar er auk þess sá upp- runalegi, svo sem skiltið yfir dyrunum „Eldsmiðjan - 1926“. Ég fékk líka dyrnar úr gömlu smiðjunni hans, smíðabekkina og flestöll verkfærin sem hann notaði við smíðarnar, en verkfærin smíðaði hann yfirleitt sjálf- ur. Þá eru upprunalegu vinnubekkirnir hans hér, steðjinn hans og meira að segja síðasta vinnusvuntan! Á verk- stæðinu getur líka að líta tvær stórar, handknúnar borvélar, sem hvergi er að finna lengur það ég best veit. Faðir minn var fæddur á Eyri í Skötufirði við ísafjarðardjúp, en flutti til ísafjarðar og lærði smíðar hjá Sig- mundi Kristjánssyni 1905-1909. Eftir það starfaði hann hjá Ásgeirsverslun sem járnsmiður og að viðhaldi 1910- 1914 og starfaði um skeið í vélsmiðju Jens Hansen Jessens þess sem setti fyrstu vélina í íslenskan bát, Stanley, árið 1902. Pabbi var frábær smiður og fyrir sveinsstykkið sitt, fjölnota töng, hlaut hann sérstakt heiðursskjal á iðn- sýningu þeirri sem haldin var í Reykjavík á aldarafmæli Jóns Sig- urðssonar 1911. Ég á hér bæði teikn- ingu af þessari töng og mynd af heið- ursskjalinu. Faðir minn var í fyrsta árganginum sem innritaðist í Vél- stjóraskólann 1915 og lauk þaðan prófi 1917. Hann bjó eftir það í Reykjavík að Barónsstíg 10 eða til ársins 1926 þegar fjölskyldan fluttist austur á Neskaupstað og þar starfaði hann alla tíð síðan. Ég var þá tveggja ára, en ég er fæddur þann 21. júní 1924.“ „Ég hef aldrei sótt um vinnu á ævi minni“ „Svo ég segi dálítið af ferli mínum, þá fór ég snemma að vinna. Ég var 7 eða 8 ára þegar ég tók að vinna við salt- fiskbreiðslu og í smiðju föður míns, en þar lærði ég að lóða og önnur smíðastörf. Seinna lá leiðin á sjóinn. Ég var þá 13 ára. Fyrsti útgerðarmað- urinn var vinur minn Lúðvík Jóseps- son sem þá gerði út línubátinn Enok fyrir austan og því þótti mér fara vel á að fá hann til að opna safnið hérna formlega 1988. Ég lauk hinu minna mótóristaprófi í i F w \ 'jrmgm ilfl
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110

x

Sjómannadagsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.