Sjómannadagsblaðið

Árgangur

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1994, Síða 73

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1994, Síða 73
SJÓMANNADAGSBUÆJIÐ 71 Byrjaði hann þá formennsku, fyrst fyrir vorbát, en síðan fyrir vetrarver- tíðarskipi. Tók hann þá Þuríði fyrir háseta og þótti það nýlunda að stúlka fyrir innan tvítugt væri ger jöfn við fulltíða karlmenn er afla var skipt. Þó líkaði hásetum þetta vel, því bæði var Þuríður hveijum manni fisknari og hin fljótasta og snarasta til hvers sem var, og svo var hún einkar örugg og úrræða- góð, aðgætin og glöggsæ, svo að skips- menn skutu oft máli til hennar er á þótti ríða og þótti hún ráða úr bæði fljótt og vel. Liðu nú 6 ár svo að Þuríður var háseti Bjama bæði vor og vetur frá því hann byrjaði formennsku.“ Bátsendaveðrið 1799 Sjór og veður ráða oft farnaði sjó- manna og við náttúruhamfarirnar sem urðu 9.janúar 1799 og nefnt var ,,Stóraflóð“ við Suðurströndina en ,,Bátsendaveður“ við Faxaflóa, urðu þáttaskil í sjómennsku Þuríðar. Skip Bjama bróður hennar brotnaði í nausti og varð ósjófært. Þá falaði annar for- maður Þuríði sem háseta. Tildrög þessa segir Brynjúlfur Jónsson hafa verið þannig: „Jón (Þórðarson í Móhúsum) hreppstjóri aflaði manna best, enda sótti hann djarft sjó. Hann var mann- vandur mjög og vildi eigi aðra háseta en þá, er annað hvort voru hraust- menni eða' góðir fiskimenn og helst hvorttveggja. Völdust menn mjög til hans. Það var honum kunnugt að Þur- íður var betri fiskimaður en aðrir menn og auk þess mjög glöggsæ á allt það er til sjómennsku heyrði. Nú er skip Bjarna var brotið falaði Jón hana til sín. „Ég er ekki maður til að róa hjá þér,“ sagði hún. „Þorirðu ekki að róa hjá mér?“ spurði hann. „Brestur dug en ekki hug,“ segir hún. „Dug hefurðu að draga fisk hjá mér eins og öðrum,“ segir hann; „það sem örðugara er gera aðrir; þeir vilja vinna það til.“ Þuríður sagði þá sem satt var að hún var ráðin hjá Bjarna og hann ætlaði að smíða upp skipið. Þá sagði Jón: „Sleppum því þá í þetta sinn, en ráddu þig ekki hjá honum aftur, róðu hjá mér að vetri.“ „Því læt ég Bjarna ráða,“ sagði hún. Síðan talar hún um þetta við Bjarna. Hann sagðist vilja að hún yrði hjá sér meðan unnt væri. „Meiri afla fær móðir mín eftir mig hjá Jóni en þér,“ segir Þuríður. „Heyri ég að þú vilt fara til Jóns,“ segir Bjarni, „og skaltu ráða.“ 19 vertíðir hjá Jóni í Móhúsum Það varð úr að Þuríður réðist til Jóns; reri hún fyrst hjá honum veturinn 1800 og var hún þá 23 ára. (Þetta mun ranghermi. Þuríður hefur fyrst ráðist háseti til Jóns tvítug að aldri árið 1797.) Var hún síðan háseti hjá honum 19 vetrarvertíðir. Féll þeim vel hvoru við annað og sagði hann henni margt frá yngri árum sínum, sem hann sagði eigi öðrum. Hásetar Jóns höfðu Þuríði í háveg- um. Bar margt til þess. Jón þótti held- ur þaulsætinn á sjó í brimi og djarfur þótti hann að hlaða skip sitt; en Þuríð- ur var aðgætin um það sem annað og hafði einurð til að segja honum það er henni sýndist. En hann tók jafnan vel skynsamlegum ástæðum og varð það að venju að hann fór að tillögum Þur- íðar. Tók hann eftir því að Þuríður fýsti jafnan heimferðar í tíma, en þá svo, að eigi var seinna betra. Það kom líka fyrir að Jón átaldi háseta fyrir eitt og annað og eigi með þeirri nærgætni og sanngirni sem þeim þótti hæfa. Svaraði Þuríður þá jafnan fyrir þeirra hönd og kom öllu í gott lag. Af þessu vöndust þeir á að láta Þuríði svara fyr- ir sig hvenær sem þurfti. Einnig var Þuríður skemmtileg, ræðin og upp- lífgandi á sjó og landi. Það orð lagðist á að Þuríður væri formannsefni.“ Þuríður varð fyrst formaður með vorbát árið 1804. Fyrsta skipið sem hún var formaður fyrir á vetrarvertíð lét Jakob Árnason prófastur í Gaul- verjabæ smíða og var Þuríður með það árin 1816-1830. Þá var um skeið fiskileysi og ógæftir hjá Stokkseyrar- skipum og fluttu margir skip sín til Þorlákshafnar. I Þorlákshöfn var Þur- íður formaður með sexæring á vetrar- vertíðum árin 1830-40. Einkamál Þuríðar Þuríður átti um ævina tvo sambýlis- menn og einn eiginmann, og voru þeir allir myndarmenn. Sambúðin varð þó í öllum tilvikum stutt, því menn verða að vera miklir af sjálfum sér til þess að meta sambúð við svo mikilhæfa konu. Allir vildu þeir taka af henni ráðin, en hún sleit sambúðinni án alls fjand- skapar. Eina dóttur eignaðist Þuríður og hét hún Þórdís Erlendsdóttir, fædd 1805 og dó hún þriggja ára gömul. Búskap rak Þuríður og hafði hjú. Ekki þótti henni græðast fé á búskap, því hún var framkvæmdasöm og byggði gjarna upp bæjarhús á þeim jörðum sem hún tók á leigu. Harðæri var mikið í landinu alla starfsævi Þuríðar og sum árin mann- fellir. Hún var útvegasöm um matföng og kunni að notfæra rætur og sjávar- fang betur en almennt gerðist og varð henni vel til hjúa. Nokkrar stúlkur voru hjú Þuríðar og fylgdu henni til sjóróðra meðan hún var háseti hjá öðrum, en voru skip- verjar hennar eftir að hún tók við for- mennsku. Þess er við getið af Jóni Jónssyni á Hlíðarenda og fleiri heim- ildarmönnum að Þuríður gerði sér far um að kenna ungum konum til sjó- mennsku. Þuríður Einarsdóttir dó á Eyrar- bakka þann 13. nóvember 1863 og lýkur hér að segja af þeirri konu sem mest orð hefur getið sér á Islandi fyrir sjósókn. (Þáttur þessi er fengintt úr riti Þórunnar Magnúsdóttur sagn- frœðings, „Sjósókn sunnlenskra kvenna “).
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110

x

Sjómannadagsblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.