Sjómannadagsblaðið - 01.06.1994, Side 82
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ
80
Aðalbjörg RE-5 var sjósett 1935. Árið 1960 var báturinn lengdur og síðar voru ýmsar
aðrar breytingar gerðar á honum. Síðla hausts 1986 kom Aðalbjörg úr sínum síðasta
róðri og er nú safngripur íArbœjarsafni.
undra þótt örvænting gripi um sig
meðal farþega og áhafnar. Aðeins einn
skipsbátur til reiðu og 60 manns um
borð, eins og heimildir greina frá. En
nú dúraði vindur og landölduna lægði.
Þá fyrst gátu Látramenn sjósett báta
sína, ýtt úr vör og bjargað öllum af
Goðafossi, farþegum og áhöfn.
Hér má sem best minnast á að
Goðafoss var fyrsta íslenska skipið
búið loftskeytatækjum vegna væntan-
legra Ameríkusiglinga. I þessari ferð
var einmitt loftskeytamaður frá Mar-
conifélaginu til starfrækslu og eftirlits
með tækjum þessum um borð. En
hvorki tæki né maður komu að nokkru
gagni. Loftnetið sem strengt var á
milli mastra slitnaði fljótt og þótt hægt
hefði verið að tjasla upp einhverju
loftneti hefði það lítið bætt ástandið
þar sem verulegur hængur var á nyt-
semi þessara tækja. Hér á landi var þá
engin jarðstöð til að nema loftskeyti.
Má leiða að því sterkum líkum að
strand Goðafoss og öll sú umræða
sem af því hlaust hafi flýtt fyrir því að
loftskeytastöðin á Melunum var reist,
en hún tók til starfa í júní 1918.
Báðum þessum mönnum, Gunnari
og Jóni, svaraði ég með nokkrum lín-
um í lesendabréfi til Morgunblaðsins
26. janúar sl. undir yfirskriftinni
„Báðir leita þeir langt yfir skammt",
og gat þess jafnframt að þakksamleg-
ar ábendingar þeirra hefðu rifjað upp
ýmsa atburði þeim skylda og að ef til
vill mundi ég geta þeirra síðar. Það
skal nú reynt og tel ég Sjómannadags-
blaðið réttan vettvang þeirra hugrenn-
inga.
T\indurspillirinn „Skeena“
strandar
Aftakaveður geisaði inn um sund og
útum eyjar aðfaranótt 25. október
1944. Skömmu eftir miðnætti er Einar
formaður Sigurðsson á mótorbátnum
Aðalbjörgu RE-5 (22 tonna eikarbát-
ur), vakinn og beðinn að mæta sem
skjótast í höfuðstöðvar breska hersins
við Reykjavíkurhöfn. Það tekur „Mr.
Aðalbjörg“, en svo var Einar jafnan
kallaður af Bretum, ekki langan tíma
að koma sér á vettvang. Þar fær hann
þær fréttir að kanadiski tundurspillir-
inn Skeena, 3000 tonn með 213
manna áhöfn væri strandaður „ein-
hvers staðar við Viðey“. Nú átti „Mr.
Aðalbjörg“ að fara á báti sínum, finna
strandstaðinn og bjarga mönnunum.
Bretarnir þekktu Einar formann af
góðu einu, dugnaði og harðfylgi.
Hann hafði verið í förum á vegum
hersins á milli Reykjavíkur og Hvíta-
ness í Hvalfirði, og Aðalbjörg RE-5
var happafleyta undir öruggri stjórn
Einars. Hann lætur úr höfn á báti sín-
um og Sundin þekkir hann öllum
mönnum betur. Hann finnur í blind-
hríð og foráttubrimi, Skeena, sem
veltist um í flæðarmálinu við NV-
odda Viðeyjar og skynjar þegar að af
sjó verður engri björgun við komið.
Einar heldur því aftur til hafnar.
Enn er lagt af stað og nú á tveimur
innrásarprömmum sem stjórnað er af
Ameríkönum, en sjálfur björgunar-
leiðangur Breta telur 22 menn. Einari
er falin stjórn hans, „COS COMM-
ANDER ON SCENE". Ýmsum bún-
aði er komið fyrir á prömmunum,
skjólfatnaði og vistum ásamt björgun-
arbúnaði, línubyssu af Coston-gerð og
köðlum. Landtaka í Sandvík á austur-
strönd Viðeyjar er reynd tvisvar sinn-
um. Loks í þriðju tilraun tekst hún
giftusamlega. Búnaður allur er borinn
yfir eyjuna að strandstað og björgun
hafin. Arangurslausar tilraunir voru
gerðar til að skjóta línu út í Skeena, en
loks tókst skipbrotsmönnum sjálfum
að skjóta línu í land. Skipbrotsmenn
eru nú dregnir á land í korkflekum
með neti í botni. Lækningastofu er
komið upp í eyjunni þar sem hver
maður er skoðaður, „Mr. Aðalbjörg“
líka, blautur, svartur af olíu upp fyrir
haus og gegnkaldur eftir að hafa stað-
ið í sjó alla nóttina.
Um kl. 10.00 um morguninn hefur
auðnast að bjarga eftirlifandi 198 sjó-
liðum af Skeena, en 15 hafa farist.
Allir björgunarbátar hafa ónýst við
strandið og því eru björgunarflekar
(Carla Floats) bundnir saman og
tengdir við skipið með dráttartaug.
Reynt er að fleyta þeim og róa (paðla)
til lands, en taugin slitnar og flekana
rekur frá skipinu. Þar um borð eru 15
„Mr. Aðalbjörg", Einar formaður Sig-
urðsson með heiðursorðuna - „Member
of the British Empire “ — í barmi.