Sjómannadagsblaðið

Volume

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1994, Page 84

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1994, Page 84
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 82 Togarinn Gullfoss RE-120 fórst með allri áhöfii, 19 mönnum, undan Snæfellsnesi 28. febrúar 1941. Örlagadagurinn 28. febrúar 1941 - Togarinn Gullfoss RE-120-TFAD ferst við Snæfellsnes í lok febrúarmánaðar skellur á óveður af norðaustri eins og þau geta orðið verst og magnast í fárviðri er líður á aðfaranótt 28. febrúar. Miklar skemmdir verða á mannvirkjum og mikið tjón á bátum í ýmsum höfnum landsins. Tilfinnanlegasta áfallið þessa óveð- ursnótt var þegar togarinn Gullfoss RE-120 fórst með allri áhöfn, 19 mönnum á norðanverðum Faxaflóa. Ekkert samband náðist við togarann og var því í fyrstu vonast til að loftnet hefðu slitnað í þessu hamslausa veðri og fjarskiptatæki því orðið óvirk. Víð- tæk leit var gerð, bæði af varðskipun- um Oðni og Ægi, björgunarskipinu Sæbjörgu, níu togurum auk flugvélar- innar TF-Örn, og einnig tóku herflug- vélar þátt í þessari leit. Leitin bar eng- an árangur og ekkert fannst sem bent gæti til afdrifa skipsins. Togarinn Gullfoss hét upphaflega Gustav Mayer, þýskur togari frá Wes- ermunde, smíðaður 1920, og var 214 brl. að stærð. Aðfaranótt 20. febrúar 1933 strandaði togarinn á Svínadals- fjöru í Meðallandi. 13 manna áhöfn sakaði ekki. Næstu daga var unnið að björgun alls lauslegs úr skipinu, sigl- ingatækjum, kolum o.fl. og var strandgóssið selt á opinberu uppboði. Þótti þá sýnt að skipið næðist ekki út. Nokkru síðar tókst að ná skipinu af strandstað undir stjórn Einars Einars- sonar skipherra á varðskipinu Ægi. I fyrstu var togarinn Gullfoss í eigu samnefnds samvinnuútgerðarfélags í Reykjavík, en 1936 keypti Magnús Andrésson, Reykjavík, skipið af Landsbanka Islands. Aftur skal vikið að athugasemd Gunnars bókavarðar í fyrrnefndu bréfi til Morgunblaðsins, þegar bjsv. Þorbjörn í Grindavik bjargaði 42ja manna áhöfn af togaranum Jóni Bald- vinssyni RE-208 er strandaði við Reykjanes hinn 31. mars 1955 og frá er greint sem „fjölmennustu björgun hér við land, er 42 mönnum var bjarg- að í björgunarstól." Það er heldur ekki rétt. Persier strandar á Kötlusöndum Nú liggur leiðin austur fyrir fjall, alla leið á Kötlutanga á Mýrdalssandi, þar sem belgiska vöruflutningaskipið Persier er strandað, 8200 tonn, full- fermt af hrájárni og bifreiðum og áhöfnin telur 44 menn. Varðskipið Ægir, sem þá er í Vestmannaeyjum, nemur fyrsta neyðarkallið frá Persier og heldur strax á strandstað og biður jafnframt Skipaútgerð ríkisins að koma boðum til bjsv. SVFÍ í Vík í Mýrdal. Þau boð ná aldrei til Víkur. Veðurhamurinn hefur brotið staura og
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110

x

Sjómannadagsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.