Sjómannadagsblaðið

Árgangur

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1994, Síða 88

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1994, Síða 88
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 86 Togariitn Sviði GK-7 frá Hafnarfirði fórst með allri áhöfn, 25 mönnum, úti afSnœfells- nesi 2. desember 1941. Hrauni er maður sendur til Grindavík- ur og björgunarsveitin kölluð út, sem þegar heldur á strandstað. Björgunar- tækin eru sett á pallbíl, en þar sem ekki er bílfært alla leið á strandstað þarf að bera hin þungu tæki drjúgan spöl. Og hvaða hugsanir sækja að þessum björgunarmönnum sem nú í fyrsta sinn fá að reyna sig við beljandi brim- ið í roki og kulda og auk þess í niða- myrkri útmánaðar? Aðeins viku áður höfðu þeir fengið þessi björgunartæki til umráða, lært meðferð þeirra og notkun á einni samæfingu undir ör- uggri tilsögn hins merka brautryðj- anda og frömuðar Jóns E. Bergsveins- sonar, erindreka Slysavarnafélags Is- lands. í fyrsta bindi bókaflokksins ,,Þraut- góðir á raunstund" er snjöll lýsing Steinars J. Lúðvíkssonar af fyrsta fluglínuskotinu til björgunar manna í sjávarháska: „Einar og Guðmundur verða sam- mála um miðunina. Allt er tilbúið fyrir skotið. Guðmundur Erlendsson tekur í gikkinn. Hamarinn smellur fram og sprengir púðurskotið í byssunni. A sama andartaki kveikir það í eldflaug- inni og hún þýtur af stað með háværu hvisshljóði. I fyrsta skipti hefur verið skotið úr línubyssu til björgunar á Is- landi. Mennirnir fylgjast spenntir með eldflauginni, þar sem hún klýfur loft- ið. Skotið heppnast prýðilega. Línan kemur yfir skipið rétt fyrir framan stjórnpallinn. Það er auðvelt fyrir skipsmenn að ná til hennar. Þeir verða reyndar að sæta lagi að ná henni, en skjótt er hún í þeirra höndum. Sam- band er fengið við land. Björgun skipbrotsmannanna 38 af Cap Fagnet gekk að óskum, en þó mátti ekki tæpara standa, því aðeins nokkrum klukkustundum eftir björg- unina hafði skipið algjörlega eyðilagst á strandstaðnum.“ Ekki er það ætlunin að tíunda og greina frá hverjum einstökum atburði í glæstri sögu björgunarsveitarinnar Þorbjörns, sem hefur auðnast að bjarga 214 mönnum úr sjávarháska, bæði innlendum sem erlendum. Við stofnun SVFÍ og útvegun flug- línutækjanna voru tímamót mörkuð í íslenskri björgunarsögu. Eins og al- þjóð veit hefur mörg skotlínan hæft í mark og margar styrkar hendur björg- unarmanna þanið líflínuna með björg- unarstólnum til lands. Tengt þannig líf við land. Lokaorð Þennan eftirminnilega febrúardag 1941 voru rismikil björgunarafrek innt af hendi. A þessum eina sólar- hring hafði auðnast að bjarga samtals 129 erlendum sjómönnum úr bráðum sjávarháska og 9 íslenskum sjómönn- um var bjargað við Skotlandsstrendur. Þó bar þar á mikinn skugga sorgar og söknuðar, þegar ljóst var að togarinn Gullfoss frá Reykjavík hafði farist með allri áhöfn, 19 mönnum. Sá sorg- legi atburður leiðir hugann að nýju til ársins 1941, hins ógnvekjandi og eins mesta árs sjóslysa í sögu sjósóknar og siglinga. Á því ári fórust alls 139 lög- skráðir íslenskir sjómenn við skyldu- störfin á hafinu og langflestir þeirra af orsökum styrjaldarinnar á einn eða annan hátt. íslenskir sjómenn kynnt- ust svo sannarlega grimmdaræði og miskunnarleysi hildarleiksins á haf- inu. í marsmánuði einum var gerð morðárás á þrjú íslensk fiskiskip í för- um milli íslands og Englands og fleiri skip íslensk fórust af hernaðarvöldum sem vitað er með vissu. Áður var getið um þegar togarinn Gullfoss fórst með allri áhöfn og í byrjun desember fórst einnig togarinn Sviði GK-7 frá Hafnarfirði með allri áhöfn, 25 mönnum. Ekki má heldur gleyma að íslensk skip björguðu fjölmörgum erlendum skipbrotsmönnum af skipum sem far- ist höfðu af orsökum hernaðarins á hafinu. Má þar nefna er Brúarfoss bjargaði 34 mönnum af skipi sem orð- ið hafði fyrir tundurskeyti á milli Is- lands og Bandaríkjanna og togarinn Surprise frá Hafnarfirði bjargaði 29 mönnum af skipi sem sökkt hafði ver- ið á milli íslands og Englands. Að lokum óska ég íslenskum sjó- mönnum og fjölskyldum þeirra til hamingju með daginn og árna þeim góðs gengis um alla framtíð. Hannes Þ. Hafstein fyrrv. forstjóri SVFÍ
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110

x

Sjómannadagsblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.