Eimreiðin - 01.04.1928, Blaðsíða 31
EIMREIÐIN
KAIRO-FOR
127
niúmían af hinum unga konungi var þá enn ókomin. Þar
wátti sjá marga girnilega gripi, frá því stærsta til hins smæsta.
En líklega hefur hirðfólkið við egyfzku konungshirðina um
1350 f. Kr. ekki grunað, að nokkurn tíma mundi verða bros-
að að glervörunum, sem konungi voru fengnar í gröfina. Nú
a tímum verða þær að teljast ókonunglegar; ílátin öll dældótt
°g brengluð og liturinn vatnsblandslegur. En þá hafa þetta
bótt fáséðir gripir og merkilegir — og betra ekki fengist,
enda munu munir þessir vera með allra elstu glervörum, sem
l'l eru í heimi. Þá er öðru máli að gegna um tvær gullkist-
Ur, sem kóngur lá í, og tvær gullgrímur, sem lágu næst and-
Eti hans. Mér þykir mjög efasamt, hvort unt væri að gera þá
Sn'pi á vorum dögum. Þetta kann nú að þykja mikið sagt, en
hvar ætti að taka gull í tvær heilar líkkistur utan um einn
l'kama á vorum dögum? Heimurinn virðist nú hafa eitthvað
annað að gera við gullið en að smíða úr því líkkistur. Og í
®ðru lagi: Hver ætti að smíða þær? Það má að vísu ætla,
aö gullsmiðir nútímans standi ekki að baki gullsmiðunum í
Egyftalandi á dögum Tut-Anch-Amens. En sá er munurinn,
að nú er enginn gullsmiður til, sem hefur sérstaklega lagt
lyrir sig að smíða líkkistur úr gulli, en í Egyftalandi var það
alhtt, að gullkistur væru smíðaðar utan um konunga og stór-
raenni. Það hefur sennilega verið margra ára verk að smíða
hverja um sig, og er því meir en líklegt, að fagmenn hafi
verið þar til, sem lítið hafi gert annað en að smíða líkkistur
Ur gulli. Þessar gullkistur Tut-Anch-Amens eru hinar mestu
9ersemar, bæði er mikið í þær borið, og svo er handbragðið
óásamlegt. Lagið er látlaust og samsvarar sér vel, og allar
eru bær skreyttar upphleyptum eða greyptum myndum.
En mest fanst mér til um innri grímuna, þá, sem lá næst
audliti kóngsins. Fræðimennirnir segja, að það sé rétt and-
■tsmynd hans. Hann dó innan tvítugs og gríman er mynd af
Uu9lingi, harla fríðum. Hún er úr hinu litfagrasta gulli og
augljáandi, nær ofan á brjóstið, niður fyrir geirvörtur og er
SeH dýrum steinum og gljákvoðu að neðan og utan með
andlitinu. Upp af miðju enninu bugðar sig höggormur blá-
9r®nn og greypt í gulli og gimsteinum. Augu og augnaum-
uningur er einnig úr gljákvoðu og gimsteinum. Augnabrýrnar