Eimreiðin - 01.04.1928, Síða 88
184
LÍKAMSMENT OG FJALLAFERÐIR
eimreiðin
ekki hefur horft yfir lönd af fjallstindi. Maður gæti alveg eins
reynt að hella lofti úr flösku. En það er víst, að almennar
fjallgöngur mundu umskapa þjóðina á nokkurum mannsöldr-
um. Sá, sem þekkir bayersku og svisslenzku fjöllin, getur
dæmt um, hvaða þýðingu þau hafa fyrir þjóðirnar. Eftir að
Norðmenn kendu þessum þjóðum skíðaíþróttina í sinni feg'
urstu mynd, hefur máttur þeirra stórlega aukist.
Fjallgöngumaðurinn eignast víðsýni og bjartsýni í tvennum
skilningi. Hann ber höfuð sitt hátt og frjálsmannlega, brjóstið
verður hvelft og gangurinn öruggur. Stúlkurnar fá auk þessa
eitthvað af fráleik hindarinnar, og fjarlægðir vaxa þeim ekki i
augum.
Þó ólíku sé saman að jafna, ætla ég að minnast á Alpa'
fjöllin í sambandi við þetta. Bayarar, Austurríkismenn, Italir*
Svisslendingar og Frakkar hafa unnið sameiginlega að því a^
gera þau aðgengileg fyrir ferðafólk. Fæst af þeim stórvirkl'
um, sem þar hafa verið gerð, eru kostuð af opinberu fé. Það
eru félög og einstaklingar, sem byggja brýr, sæluhús og veðl
og hafa fjölda manna til að leiðbeina ferðafólki.
Þýzk-austurríska Alpafélagið hefur um 6 miljónir félaga, er
greiða minst 6 marka árgjald hver, sem varið er til nauðsya-
legra framkvæmda. Þeir heimta ekki alt af þingi og stjórn-
Við íslendingar stöndum illa að vígi sökum mannfæðar o3
hörkuveðra. Þó getum við á 50 árum gert öræfin svo vist-
Jeg, að unga fólkið myndi heldur kjósa fjallavist en götueiðr
an sér til skemtunar, bæði vetur og sumar.
Ég skýt máli mínu til íþrótta- og ungmennafélaga, til al r
kennara og þjóðarinnar í heild sinni: Leitið fjallanna
krafts þess, sem þau geyma.
Jafnvel nú þegar er hálendi okkar fært hverjum röskum
manni og öllum hispurslausum stúlkum.
íslendingar geta stofnað fjallafélag með 3—4 þúsund me
limum, sem hver legði 5—10 krónur í verkleg fyrirtæ u
Með 25 þúsund krónum og svo styrk þeim, sem ríkið mðS
til fjallvega, má gera mikið.
Það fyrsta, sem þarf að gera, er að byggja hentug ssem ^
með svefnbálkum og eldunaráhöldum, svo þétt, að hæS