Eimreiðin - 01.07.1928, Síða 30
222
ÚTVARP OQ MENNING
eimreiðin
var til. Þannig líktist prentletrið í fyrstu skrifstöfunum, og
fyrstu bílar hestvögnum. Áður en ég minnist nánar á listina í
sambandi við útvarpið, vil ég nefna nokkrar aðrar hlið-
ar þess.
Fréttaútvarp er það sem fyrst verður fyrir manni, og er
nytsemi þess öilum auðsæ, hvort sem það eru tíðar veður-
fregnir og veðurspár sem öflugt vopn gegn slysförum á sjó,
lofti eða landi, eða sem nytsamt meðal við dagleg störf, bú-
skap eða sjávarútveg, eða það eru tímamerki og daglegar
fréttir um viðburði, sem eru að gerast fjær og nær, eða þa
sérstakar fréttir um verzlun (verðlag og gengi, kaup og sölu
o. fl.), siglingar, samgöngur, heilsufar, bókmentir, leikhús,
íþróttir, stjórnmál (þingfréttir), eða opinberar tilkynningar, auS'
lýsingar eða hvað annað, sem það nú kann að vera.
Fræðsluútvarp hefur frá upphafi verið rekið þannig,
altaf öðru hvoru hafa verið fluttir fyrirlestrar um einstök efm,
og eiga það auðvitað að vera úrvalsfyrirlestrar, sem geta haft
ákaflega mikla þýðingu fyrir alt mentunar- og menriingar'
ástand þjóðarinnar og atvinnuvegi hennar. Það er hin bezta
og ódýrasta alþýðufræðsla, sem til er, og flytur almenning1
vísindin í meltanlegri mynd. Stundum eru þessir fyrirlestrar i
föstu kerfi, og jafnvel haldin heil námskeið í útvarp, og 1
Ameríku hlusta bændurnir á búgörðum sínum á slík nam-
skeið á veturna, en fara svo á vorin til borgarinnar og taka
próf í því, sem þeir þannig hafa numið. í stóru löndunum
gera kenslumálastjórnirnar alt sem þær geta til að reyna að
finna beztu leið til að nota útvarpið við kennaramentun, unS'
lingafræðslu og til að hafa áhrif á uppeldisvitund foreldranna.
Þar er nú varið fjölda stunda sérstaklega í uppeldismála- °S
skólaútvarp, sem er aðallega ætlað fyrir skólana í sveitunum,
og þetta skólaútvarp er nú í mjög örum vexti. Það a a
kynna kennurum í sveitum og þorpum helztu fræðslustefnm-
nútímans, og gera þeim mögulegt að fylgjast með í Þeirn‘
Kennarinn stendur í nánu sambandi við fræðimenn þá °S
listamenn, sem vinna við útvarpið, og hann getur látið Imri
sveina sína heyra tungumál, skáldskap og tónlist á fullkomn
ari hátt með útvarpinu, en hann annars gæti veitt þeim s)a
ur. Það þarf að laga þetta útvarp eftir hinni venjulegu kens u