Eimreiðin - 01.07.1928, Blaðsíða 44
236
FRÁ GRÍMSEV
eimreiðin
Það, sem ég þekki til sögu skáklistarinnar hér, eru aðeins
sagnabrot, gripin úr umræðum óskyldra efna. — Menn tala
hér yfir höfuð ekki um skák. Það er eins og hálfgleymdar
sagnir slæðist inn í hug sumra stöku sinnum, og áhuginn
logar í augum við endurminningu um afreksverkið, — vel
leikinn leik, — augnablik, svo hverfur glampinn; en maður
hefur séð eins og óljósa mynd af óhreinni torfbaðstofu með
daufu Ijósi og illa klæddu fólki. Allir gluggar byrgðir. Stór-
hríð gælir við gluggaskotin, — matarleifar á hillunum, kambar
og rokkar við rúmin og — borð með tafli. — Tveir leika,
hratt, — eldhratt, og úfið fólkið þyrpist umhverfis þá með
prjóna sína og þóf. — Það voru gömlu Grimseyingavnir, setn
tefldu. — Það voru þeir Friðrik, Ingvar, Sæmundur, Eiríkur
og hvað þeir nú hétu, allir þessir gömlu meistarar. — Það
voru þeir og synir þeirra.
Engir mega taka orð mín svo, að meðal þeirra, sem nú
lifa hér, hafi eigi verið góðir taflmenn. — Þvert á móti-
Nokkrir beztu taflmennirnir frá gullöld skáklistarinnar hér1)
eru enn lifandi, en það eru þeir, sem komu að og lærðu eða
juku kunnáttu sína hér, að einum eða tveimur fráskildum.
En nú er önnur öld og þeir gömlu farnir, þeir sem ekkert
þarfara höfðu við að vera langar, kaldar vetrarkvöldvökur,
meðan skorturinn og skaflinn sátu við dyrnar, og við hafs-
brún blámaði fyrir bliki hins »hvíta dauða«, er sigldi hraðbyri
til lands, — og ef til vill fylti sundið næsta dag. Þá var teflt-
Nú eru baðstofurnar bjartar og hreinar, fólkið vel búið,
veiðarfærin í úthýsum eða vel hirt við ofna og vélar, dag-
blöð og tímarit á hillum eða í bókaskápum — en taflið i
ruslakistunni. — Hið gamla hefur kvatt og gengið inn í rökk-
urhallir Urðar; það hefur tekið með sér alt, sem það átti,
1) Þaö var próf. Willard Fiske, sem hóf skáklist eyjarmanna til vegs
og virðingar með aðstoð séra Matthíasar. Fiske gaf tafl og taflborð a
hvert heimili og fylgdi með áhuga öllu í skáklífi eyjarinnar. — Um
eftir aldamótin stóð svo tafllistin hér hæðst. — Beztu taflmenn munu Þa
hafa verið hér séra Matth. Eggertsson, Ingvar Guðmundsson á Svetna-
görðum og synir hans, Albert og Eymundur, Sæmundur ]ónatansson a
Sveinsstöðum, bróðir Friðriks Jónatanssonar, og Björn, sonur Sæmundar.
— Síðar þeir synir Matthíasar Eggertssonar prests.