Eimreiðin - 01.10.1928, Page 45
eimreiðin
LIFA LÁTNIR?
349
förina héðan, geta rólegir beðið eftir því að sameinast aftur ást-
vinunr sínum, sem þeir urðu að skilja hér eftir, þegar kallið kom.
Er þetta þá alt og sumt? Nei, engan veginn. Það er til önnur
öruggari leið til að öðlast lausnina á leyndardómi þeim, sem
hvílir yfir ríki hinna framliðnu. Til er vitnisburður manna, sem
sýnir enn æðri fullkomnun og dýrðlegra framhald persónu-
leikans en vér þekkjum nú. En til þess að komast í það ástand
verður maðurinn að hefja sig upp í tölu dýrðlinganna og öðlast
reynslu hins helga manns. Fáir eru hæfir til þeirrar náðar
að geta komist í stöðugt og órjúfanlegt vitundarsamband við
sjálfan guð. Bréfritarinn minnist á »hina óljósu kenningu
ttiína um ídvöl guðs«. En það er hin eina skynsamlega skoð-
un á lífinu. Engin önnur skoðun á guði er líkleg til þess að
verða viðurkend af hugsandi mönnum nú á dögum. Vér lifum
af því guð lifir í oss, og því meir sem vér getum tileinkað
oss hið guðdómlega, þeim mun meiri verður þroski vor.
Kristur talaði lítið um framhald lífsins eftir dauðann, en mikið
um líf hjá guði og í guði, en það líf er andlegt takmark vort
°9 felur í sér alt hið góða og göfuga, sem hugurinn fær
skynjað og hjartað þráir.
Rök Campbells fyrir framhaldi lífsins eru bæði sótt til sál-
arrannsókna nútímans og í reynslu helgra manna á öllum
Öldum. Sjálfur er hann hneigður til dulvísi, eins og vart verður
v>ð lestur bóka hans. Eðlilega telur hann því dulræna trúar-
'ega reynslu manna mikilvæg rök í því máli, sem hér er um
að ræða. Og hver mundi dirfast að hafna þeim rökum með
þótt sjálfur hefði ekki neina slíka reynslu að baki?
E. S. Waterhouse er doktor í guðfræði eins og séra Camp-
bell, og kennir sálarfræði og heimspeki við Wesleyan College
1 Richmond; auk þess á hann sæti í háskólaráði Lundúna.
Hann er höfundur að bókum um trúarleg og heimspekileg
efni og mikill lærdómsmaður.
Maðurinn er spyrjandi í sífellu, segir dr. Waterhouse, en
en9in af spurningum hans er áleitnari en sú, hvort vér lifum
t>ótt vér deyjum. Það er jafnmikil fjarstæða að segja, að ekki
Se unt að svara þessari spurningu, eins og að segja, að nokk-
Urt eitt svar sé algilt og flytji oss allan sannleikann. Allar
Vlsindagreinar glíma við viðfangsefni, sem ómögulegt er að