Eimreiðin - 01.10.1928, Blaðsíða 54
358
LIFA LÁTNIR?
EIMREIÐIN
svo sem í ást, dauða, fegurð, sálarstríði, skynjað einhver þau
svið, sem ekki eru af þessum heimi og ná út yfir takmörk
líkamsdauðans.
Robert Blatchford er einn þeirra mörgu á vorum dögum,
sem snúist hefur frá efnishyggju og orðið sannfærður spírit-
isti fyrir rannsóknir þær á miðlafyrirbrigðum, sem fram hafa
farið á síðustu árum. Þeir sem trúa á annað líf bera flestir
í brjósti dýrðlega von um að fá þar að sameinast þeim, sem
þeir hafa elskað og mist hér í lífi. Ég er einn úr þeirra hópi,
segir Robert Blatchford. Vér sem höfum öðlast hugrekki og
styrk á sárum saknaðarstundum, af því vér áttum þessa trú,
hljótum að halda fast við hana, meðan ekki kemur fram full-
komin og skýlaus sönnun þess, að hún sé röng. En sú sönnun
kemur aldrei fram. Því hvernig standa nú sakir? Fyrir mörg-
um árum síðan var frægur vísindamaður spurður að því, hvað
hann áliti um það, hvort líf væri til eftir dauðann. Hann svar-
aði: »Ég veit ekkert um það, en öll gögn vitna gegn því, að
nokkurt annað líf sé til«. Þetta var líka mín skoðun — þá.
Ég sagði oft og mörgum sinnum við sjálfan mig: »011 gögn
vitna gegn því«. Þér getið gert yður í hugarlund, hve undr-
andi ég varð, er ég tók mig til og rannsakaði öll gögnin,
bæði með og móti, og komst að þeirri niðurstöðu, að það
væru er.gin gögn til gegn trúnni á ódauðleikann.
Eins og aðrir ber ég virðingu fyrir Sir Arthur Keith, en
skoðun hans í þessu máli skiftir mig engu. Hún er algerlega
neikvæð. Hann hvorki ósannar eða getur ósannað, að sálin
sé til og lifi áfram. Hann skýrir einungis frá því, að tilraunir
sínar hafi ekki orðið til þess að opinbera sér sál. Ruskin rit-
aði eitt sinn: »Huxley prófessor trúir ekki á guð. Hann hefur
aldrei fundið neinn í flösku«. Og vér getum sagt líkt um Sir
Arthur Keith, að hann trúi ekki á sál. Hann hefur aldrei
fundið neina í dauðum skrokk. Skyldi það vera furða! Efna-
fræðingurinn og líffræðingurinn höfðu hvorugur sannað, að
sálin væri ekki til, heldur að eins sannað, að þeir hefðu enn
ekki fundið hana. Hvað er dauðinn? Er hann, eins og margir
halda, endalok lífsins? En hver getur leyft sér að segja slíkt
meðan hann getur ekki svarað spurningunni: Hvað er lífiö ?
Enginn vísindamaður, hversu lesinn og lærður sem er, þekkir