Eimreiðin - 01.10.1928, Page 61
EIMREIÐIN
LIFA LÁTNIR?
365
hann úr jarðnesku efni, og starfa áfram eftir mætti og með
fullri meðvitund, að meiri þroska sjálfra sín og í vaxandi kær-
leika og samúð.
Meðal annars halda þeir látnu því fram, að þeir fylgist
talsvert með í því, sem gerist hér á jörðunni, og haldi áfram
að hafa áhuga fyrir málefnum hennar, einkum fylgist þeir með
í gleði og sorgum ástvina sinna og geti jafnvel hjálpað oss
og leiðbeint, ef vér leggjum fram nauðsynleg skilyrði til þess.
Þeir skýra oss frá störfum sínum og réttindum, framförum
sínum í ýmsum greinum, og þeir skýra frá því, að stundum
komi fyrir, að þeim sé leyft að heimsækja enn æðri tilveru-
svið en þau, sem þeir byggja. Á þessum æðri sviðum verði
þeir fyrir blessunarríkum áhrifum frá voldugum verum, sem
séu komnar langtum lengra á veginum til fullkomnunar en vér
mennirnir getum gert oss í hugarlund á því þroskastigi, sem
vér stöndum á. Þeir virðast því hafa komið auga á einhvern
stórfeldan tilgang í alheiminum, tilgang, sem jafnvel vér og
þeir, þótt smáir séum, getum tekið þátt í og greitt fyrir. Þeir
brýna fyrir oss að ástunda kærleika og fórnfýsi og þjónustu-
bundna hollustu og hvetja oss til að bregðast aldrei grund-
vallarhugsjónum trúarbragðanna. Þeir kunna að harma ýms
dapurleg atvik, sem fyrir koma, eins og t. d. það, að barn
deyr áður en það hefur náð þroska. En það er vel vakað yfir
börnunum, sem deyja ung. Þau fá að þroskast í góðu og
heilnæmu umhverfi. Ástríkar verur eru þar, eins og hér, sem
Segna þeirri skyldu með gleði að líta eftir þeim. Almennasta
viðkvæðið er þetta, að skilyrðin séu þar hvergi nærri eins ólík
þeim, sem vér eigum við að búa hér, eins og oss hættir til
að álíta.
Sannleikurinn er sá, að vér erum svo fjötruð af skynjunum
vorum, sem eingöngu eru bundnar við efnisheiminn, að oss
haettir við að leggja of mikið upp úr þeim en gleyma því
jafnframt, að í dularfullum regindjúpum geimsins er efnið
aðeins á víð og dreif í tiltölulega strjálum heildum og með
^öngu millibili, þar sem rúmið er aftur á móti fult af ljósvaka,
sam hefur að geyma takmarkalausar birgðir orku. Ljósvakinn
er því margfalt mikilvægari en efnið, og sú skoðun er að
^sta æ beíur og betur rætur, að í honum séu hin eiginlegu